Segja niðurstöðuna hafa komið sér í opna skjöldu Haraldur Guðmundsson skrifar 30. mars 2017 06:00 Finnur Ingólfsson, fyrrverandi ráðherra, seðlabankastjóri og forstjóri VÍS. Vísir/Pjetur „
Þetta kom mér svo sannarlega á óvart. Ég hélt að það væri búið að skoða þetta og að Ríkisendurskoðun og fleiri væru búnir að fara yfir þetta,“ segir Margeir Daníelsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Samvinnulífeyrissjóðsins, sem tók þátt í kaupum S-hópsins á Búnaðarbankanum árið 2003, um niðurstöðu rannsóknarnefndar Alþingis. „Fyrir mig er þetta stórfurða því ef rétt er þá varð ég aldrei var við annað en að þetta væri löglegur gjörningur. Ég skal ekkert segja til um hvernig að þessu var staðið en við minni hluthafar, eins og við og Samvinnutryggingar, vissum ekki af þessu. Ég mun ræða við aðra aðila í þessu máli en það er nú ekki mitt að krefja menn svara ef ekkert glæpsamlegt athæfi átti sér stað,“ segir Margeir. Finnur Ingólfsson, fyrrverandi ráðherra og seðlabankastjóri, sem var forstjóri VÍS þegar félagið tók þátt í kaupunum, vildi lítið tjá sig um niðurstöðuna þegar blaðamaður náði tali af honum í gær. „Ég hef ekkert um málið að segja því ég vissi ekki betur en að bankinn ætti þetta,“ sagði Finnur. Í viðtali við Fréttablaðið í maí í fyrra kannaðist Finnur ekki heldur við að þýski bankinn Hauck & Aufhäuser hefði verið leppur í viðskiptunum og vísaði í samantekt Ríkisendurskoðunar um söluna frá 2006. „Finnst þér líklegt að alþjóðlegur banki standi í slíku?“ sagði Finnur þá. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Salan á Búnaðarbankanum Mest lesið Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Fleiri fréttir Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Sjá meira