Gómaður með gras í rassinum á leiðinni á Litla-Hraun Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 16. mars 2017 17:27 Maðurinn var fangi á Litla-Hruani. vísir/anton
Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag karlmann í 30 daga fangelsi fyrir tilraun til þess að smygla rúmum 50 grömmum af maríjúana inn á Litla-Hraun. Forsaga málsins er sú að þann 15. nóvember 2015 var maðurinn, sem þá var til afplánunar að Litla-Hrauni, fluttur af fangavörðum til fyrirtöku í Héraðsdómi Suðurlands. Óþekktir aðilar höfðu komið fyrir 51,53 grömmum af maríjúana á salerni dómstólsins og kom maðurinn efnunum fyrir í endaþarmi sínum. Fíkniefnin fundust hins vegar þegar maður var færður til röntgenrannsóknar á Heilbrigðisstofnun Suðurlands eftir hádegi sama dag og var hann ákærður fyrir að hafa haft efnin í vörslu sinni að hluta til í dreifingarskyni. Í dómi héraðsdóms kemur fram að maðurinn hafi alls sextán sinnum áður sætt refsingu frá árinu 2000, þar af sjö sinnum vegna fíkniefnalagabrota, síðast með dómi sem kveðinn var upp 19. nóvember 2015, þar sem manninum var dæmdur hegningarauki en ekki gerð sérstök refsing. Manninum er aftur dæmdur hegningarauki nú, 30 daga fangelsi eins og áður segir, en ekki þótti tilefni til að skilorðsbinda refsinguna.
Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira