Vilja fund eftir dóm Steingríms Jón Hákon Halldórsson skrifar 18. mars 2017 07:00 Þórhildur Sunna Ævarsdóttir
Minnihluti allsherjar- og menntamálanefndar hefur óskað eftir sérstökum fundi nefndarinnar vegna nýfallins dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Steingríms Sævars Ólafssonar. Minnihlutinn telur dóminn vekja spurningar um núverandi lagaumgjörð tjáningarfrelsis á Íslandi. Að mati minnihlutans þarfnast málefnið frekari skoðunar og óskaði hann því eftir að nefndin haldi sérstakan fund. Vill minnihlutinn að boðaður verði álitsgjafar og sérfræðingar til þess að ræða málið sem allra fyrst. Í tilkynningu sem Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, sendi fjölmiðlum segir að efni fundarins muni snúast um hvernig bæta megi íslenska lagaumgjörð til þess að tryggja betur vernd tjáningarfrelsis á Íslandi. Einnig verði að komast að því hvernig best verði tryggt að Ísland uppfylli kröfur Mannréttindasáttmála Evrópu um vernd tjáningarfrelsis, sem og sambærilegra ákvæða í öðrum mannréttindasáttmálum sem ríkið hefur gengist við. Minnihlutinn hefur því óskað eftir að fá á fundinn fulltrúa frá Hæstarétti Íslands, fulltrúa frá dómsmálaráðuneytinu, fulltrúa frá menntamálaráðuneytinu, fulltrúa frá mannréttindaskrifstofu Íslands eða mannréttindaskrifstofu Háskóla Íslands auk sérfræðinga í dómum Mannréttindadómsstóls Evrópu. Þá hefur fulltrúa blaðamanna verið boðið á fundinn en fimm sinnum hefur Mannréttindadómstóllinn snúið við dómi Hæstaréttar . Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Björgvin Halldórsson látinn Innlent Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Innlent Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Innlent Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Erlent Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Innlent Fleiri fréttir Það er komið gó hjá Bó Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Hvetur til varúðar með gervigreind í aðdraganda kosninga Þau skipa L-listann á Akureyri Björgvin Halldórsson látinn Vísindi á vordögum: Kulnun og álag Ógnarhröð þróun geti líka nýst til góðs Vísað úr landi eftir búðarhnupl Uppsögn Ragnars Freys, öryggisógnir og íslenskur þorskur Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Segir furðu sæta að hagfræðingur telji námslán gjöf Stálvirki nýrrar Ölfusárbrúar flutt úr Þorlákshöfn á verkstað Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Freyr Gígja frá RÚV til dómsmálaráðuneytis Forðaðist skólann sem barn en fræðir foreldra um valkosti í dag Flestum þykir stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum Krían komin um tveimur vikum á undan áætlun Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Óvissa, ólögleg sala á áfengi og ósk um ný hljóðfæri Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Sjá meira