Chuck Berry fallinn frá Bjarki Ármannsson skrifar 18. mars 2017 22:29 Gítarleikarinn var lifandi goðsögn í rokkheiminum. Vísir/Getty
Chuck Berry, einn vinsælasti og áhrifamesti tónlistarmaður tuttugustu aldarinnar, er látinn, níutíu ára að aldri. Frá þessu greinir lögregla í Missouri í Bandaríkjunum. Berry var söngvari, gítarleikari og lagahöfundur sem átti stóran þátt í því að móta rokktónlist með vinsælum lögum á borð við Maybellene, Johnny B. Goode og Roll Over Beethoven á sjötta áratugnum. Vinsælar rokkstjörnur á borð við Elvis Presley, Pete Townshend og Angus Young sóttu innblástur í gítarleik og sviðsframkomu Berry í marga áratugi á eftir. Hann fæddist í borginni St. Louis árið 1926 og sat í fangelsi á unglingsárum fyrir vopnað rán áður en hann sló í gegn sem tónlistarmaður. Hann hlaut sömuleiðis þriggja ára fangelsisdóm árið 1962 fyrir að ferðast einn milli ríkja með stúlku undir lögaldri. Berry var meðal fyrstu tónlistarmannanna sem vígðir voru inn í frægðarhöll rokksins þegar hún opnaði á níunda áratugnum og hlaut heiðursverðlaun Grammy fyrir ævistarfið árið 1984. Hann lenti í fimmta sæti á lista bandaríska tónlistartímaritsins Rolling Stone yfir bestu tónlistarmenn allra tíma árið 2004.
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Vaktin: Totur farnar að teygja sig til norðurs Innlent Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Innlent Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Innlent Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Innlent Segir íbúafundinn ekki hafa verið nægilega upplýsandi Innlent „Allt athafnasvæði Bláa lónsins er innan varnargarða“ Innlent Með hundruð kílóa af þýfi heima hjá sér Innlent Tilbúin að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum Innlent Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Erlent Fleiri fréttir Hakkarar komu sér fyrir í kerfum fjölda fjarskiptafyrirtækja Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Leita móður ungabarns sem fannst látið á víðavangi Styrkja loftvarnir Norður-Kóreu fyrir hermenn og vopn Bolsonaro og félagar kærðir fyrir valdaránstilraun Trump-liðar heita aðgerðum gegn sakamáladómstólnum Útlit fyrir að Scholz leiði flokk sinn til kosninga þrátt fyrir óvinsældir Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Kostnaðurinn við krýningu Karls konungs 13 milljarðar króna Pam Bondi kemur í stað Matt Gaetz Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Gaetz ætlar sér ekki að verða dómsmálaráðherra Tóku tíu úkraínska fanga af lífi Meina fyrstu trans þingkonunni að fara á kvennaklósettið Fyrsta nærmyndin af stjörnu utan Vetrarbrautarinnar Gefa út handtökuskipun á hendur Netanjahú Fjögur ungmenni nú látin af völdum tréspírans Skutu fyrstu langdrægu skotflauginni að Úkraínu Hugmynd um banana á vegg seldist á 850 milljónir John Prescott fallinn frá Siðanefndin klofin í máli Gaetz en gögn farin að leka Høiby í vikulangt gæsluvarðhald Fara fram á tveggja vikna gæsluvarðhald yfir stjúpsyninum NATO tryggi lykilinnviði eftir ætluð spellvirki í Eystrasalti Hlaut dauðadóm fyrir að eitra fyrir fjórtán vinum með blásýru Hótar að fella stjórnina í skugga „pólitísks dauðadóms“ Mafíuforingi sækist eftir þingsæti í Dyflinni Heitir peningaverðlaunum og lausn þeim sem frelsa gísla Fyrsta trans konan á þingi sætir aðför af hálfu kollega sinna Sjá meira