Þessir vegir lenda í tíu milljarða niðurskurði samgönguáætlunar Kristján Már Unnarsson skrifar 2. mars 2017 20:00
Ríkisstjórnin er langt komin með að skera samgönguáætlun niður um tíu milljarða króna. Vegur um Teigsskóg, Dettifossvegur, hringvegurinn í Berufirði og ný brú á Hornafjarðarfljót eru meðal verkefna sem lenda undir hnífnum. Fjallað var um niðurskurðinn í frétt Stöðvar 2, sem sjá má hér að ofan. Samgönguáætlun sem Alþingi samþykkti þann 12. október, rétt fyrir þingkosningar, var tveimur mánuðum síðar orðin marklaus, með samþykkt fjárlaga. Jón Gunnarsson, ráðherra samgöngumála, segir að það muni tæpum tíu milljörðum króna. Þurft hefði 14 milljarða en um 4,5 milljarðar hefðu komið í fjárlagafrumvarpi til nýrra framkvæmda.Niðurskurðurinn verður mestur á Vestfjörðum. 1200 milljónir króna voru markaðar í Vestfjarðaveg um Gufudalssveit í ár en öll sú fjárhæð verður skorin af. 400 milljónir áttu að fara í Dynjandisheiði, það allt sömuleiðis verður tekið af í ár. Næstmesti niðurskurðurinn verður á sunnanverðum Austfjörðum. Einn milljarður átti að fara í nýja brú á Hornafjarðarfljót. Það verða núll krónur eftir niðurskurð. 400 milljónir voru markaðar til að klára hringveginn um Berufjarðarbotn. Þar verður heldur ekkert gert.„Það er eitt af þeim verkefnum sem við urðum því miður að fresta. Þetta eru mikil vonbrigði víða um land, því miður,“ segir Jón. Samgönguráðherra setti Krýsuvíkurgatnamótin í Hafnarfirði í forgang en annars segir hann stærstu fjárhæðir fara í nýja Vestmannaeyjaferju og Dýrafjarðargöng. Dettifossvegur átti að fá 800 milljónir króna á þessu ári. Ráðherrann segir þá tölu fara niður í 320 milljónir. „Það er umtalsvert minna en áætlað var.“ Uxahryggjavegur til að tengja Borgarfjörð og Suðurland um Þingvelli, einnig Kjósarskarðsvegur, áttu að fá 300 milljónir hvor í ár, samkvæmt samgönguáætlun. Báðir verða skornir niður í núll. „Við höfðum ekki fjármagn til að fara í frekari framkvæmdir á því svæði núna,“ segir Jón Gunnarsson. Af dreifbýlisvegum norðaustanlands lentu boðaðar vegabætur í Bárðardal og til Borgarfjarðar eystri undir hnífnum og verða engar.Sunnanlands fær Reykjavegur í Biskupstungum byrjunarframlag og segir ráðherrann að það verk fari í gang á þessu ári. Á Reykjavíkursvæðinu er áformað að skera 300 milljónir af breikkun Suðurlandsvegar milli Vesturlandsvegar og Rauðavatns og 350 milljónir af gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar í Garðabæ. 800 milljóna framlag til að fækka einbreiðum brúm verður væntanlega skorið niður í 200 milljónir króna. Þá verður 1.500 milljóna framlag til að leggja slitlag á umferðarmikla tengivegi líklega skorið niður í 850 milljónir. Ráðherrann viðurkennir að fyrirheit samgönguáætlunar eru ekki efnd. „Ekki við þessa fjárlagagerð. En ég er auðvitað að gera mér vonir um að það verði efnt það fyrirheit, sem stendur í stjórnarsáttmálanum, um að það muni koma mjög aukið fjármagn í innviðauppbyggingu. Og samgöngukerfið er klárlega einn af stærstu þáttunum þar.“ Hér að neðan má sjá umfjöllun Jóhanns K. Jóhannssonar um hugmyndir samgönguráðherra um nýja skatta í formi vegtolla.
Dýrafjarðargöng Samgöngur Tengdar fréttir Dofri bauð lægst í Dýrafjarðargöng Tékkneski verktakinn Metrostav og Suðurverk buðu lægst í Dýrafjarðargöng. Dofri Eysteinsson, forstjóri Suðurverks, vonast til að hefjast handa síðsumars. 24. janúar 2017 18:30 Svona er slóðinn sem heitir Dettifossvegur Íbúar við Öxarfjörð hafa brugðist hart við áformum stjórnvalda að fresta lagningu nýs Dettifossvegar. 2. júlí 2016 22:28 Barnafjölskyldan hengir ekki út þvott vegna þjóðvegaryks Níu manna fjölskylda á Austfjörðum, sem býr við hringveginn, getur ekki hengt þvott út á snúrur vegna þjóðvegaryks, 19. september 2016 19:45 Vilja fara um Teigsskóg vegna þessa hengiflugs Leið um Teigsskóg er besti kosturinn fyrir framtíðarlegu Vestfjarðavegar, að mati Vegagerðarinnar. 26. október 2016 20:30 Lýsing á samgöngukerfinu ekkert annað en neyðaróp Samtök atvinnulífsins óttast stórkostlegt tjón á vegakerfinu verði ekki varið meira fé til viðhalds. 30. apríl 2016 20:30 Þessi vegur fær forgang hjá nýjum vegamálaráðherra Jón Gunnarsson, nýr ráðherra vegamála, boðar að farið verði strax í gerð mislægra gatnamóta við Krýsuvíkurveg í Hafnarfirði sem fyrsta áfanga í að ljúka tvöföldun Reykjanesbrautar. 13. janúar 2017 13:06 Leiðin Reykjavík-Ísafjörður 60 km styttri eftir átta ár Líklegt má telja að vesturleiðin svokallaða taki við af Djúpvegi sem aðalvegurinn milli Reykjavíkur og Ísafjarðar. 31. maí 2016 19:35 Meira malbikað frá Mývatni á Kópasker Framkvæmdir við Dettifossveg, Kjósarskarðsveg og Uxahryggjaveg verða boðnar út á næstu vikum vegna 1.800 milljóna króna innspýtingar sem ríkisstjórnin samþykkti í dag. 26. maí 2015 20:30 Nýja brúin sem lætur menn hossast minna í Hornafirði Hún verður önnur mesta stytting hringvegarins frá því Hvalfjarðargöng voru opnuð. 9. maí 2016 20:45 Mest lesið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Fleiri fréttir Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Sjá meira
Dofri bauð lægst í Dýrafjarðargöng Tékkneski verktakinn Metrostav og Suðurverk buðu lægst í Dýrafjarðargöng. Dofri Eysteinsson, forstjóri Suðurverks, vonast til að hefjast handa síðsumars. 24. janúar 2017 18:30
Svona er slóðinn sem heitir Dettifossvegur Íbúar við Öxarfjörð hafa brugðist hart við áformum stjórnvalda að fresta lagningu nýs Dettifossvegar. 2. júlí 2016 22:28
Barnafjölskyldan hengir ekki út þvott vegna þjóðvegaryks Níu manna fjölskylda á Austfjörðum, sem býr við hringveginn, getur ekki hengt þvott út á snúrur vegna þjóðvegaryks, 19. september 2016 19:45
Vilja fara um Teigsskóg vegna þessa hengiflugs Leið um Teigsskóg er besti kosturinn fyrir framtíðarlegu Vestfjarðavegar, að mati Vegagerðarinnar. 26. október 2016 20:30
Lýsing á samgöngukerfinu ekkert annað en neyðaróp Samtök atvinnulífsins óttast stórkostlegt tjón á vegakerfinu verði ekki varið meira fé til viðhalds. 30. apríl 2016 20:30
Þessi vegur fær forgang hjá nýjum vegamálaráðherra Jón Gunnarsson, nýr ráðherra vegamála, boðar að farið verði strax í gerð mislægra gatnamóta við Krýsuvíkurveg í Hafnarfirði sem fyrsta áfanga í að ljúka tvöföldun Reykjanesbrautar. 13. janúar 2017 13:06
Leiðin Reykjavík-Ísafjörður 60 km styttri eftir átta ár Líklegt má telja að vesturleiðin svokallaða taki við af Djúpvegi sem aðalvegurinn milli Reykjavíkur og Ísafjarðar. 31. maí 2016 19:35
Meira malbikað frá Mývatni á Kópasker Framkvæmdir við Dettifossveg, Kjósarskarðsveg og Uxahryggjaveg verða boðnar út á næstu vikum vegna 1.800 milljóna króna innspýtingar sem ríkisstjórnin samþykkti í dag. 26. maí 2015 20:30
Nýja brúin sem lætur menn hossast minna í Hornafirði Hún verður önnur mesta stytting hringvegarins frá því Hvalfjarðargöng voru opnuð. 9. maí 2016 20:45