Mannfall í atlögu Bandaríkjanna gegn al-Qaeda Samúel Karl Ólason skrifar 29. janúar 2017 14:54 Bandarískar Apache árásarþyrlur munu hafa farið á undan hermönnunum og skotið eldflaugum að þorpinu sem árásin var gerð á. Vísir/AFP
Bandarískir hermenn réðust til atlögu gegn meðlimum al-Qaeda í Jemen í nótt. Herinn segir minnst 14 vígamenn hafa látið lífið og einn bandarískur hermaður hafi einnig verið felldur í bardaga. Embættismenn í Jemen segja hins vegar að minnst 41 vígamaður hafi fallið og 16 almennir borgarar, átta konur og átta börn. Þrír hátt settir leiðtogar al-Qaeda eru sagðir hafa verið felldir í árásinni. Árásarþyrlur voru fyrstar á vettvang og skutu sprengjum á þorp í Jemen. Síðan fylgdu hermenn eftir. Þrír bandarískir hermenn særðust í átökunum sem stóðu yfir í um 45 mínútur. Ein af þyrlum sveitarinnar brotlenti svo á leið til baka og slasaðist einn hermaður til viðbótar. Ekki var hægt að fljúga þyrlunni áfram og var hún sprengd í loft upp. Talið er að tveir menn hafi verið fluttir lifandi á brott, en embættismenn í Jemen segja skotmark hermannanna hafa verið Qassim al-Rimi. Um er að ræða fyrsta bandaríska hermanninn sem deyr eftir að Donald Trump tók við embætti forseta. Blaðamenn AP fréttaveitunnar ræddu við meðlim al-Qaeda sem lýsti árásinni sem „fjöldamorði“ og sagði einnig að konur og börn hefðu látið lífið. Hernaðaryfirvöld í Bandaríkjunum segja að hermennirnir hafi fundið upplýsingar í árásinni, sem muni líklega veita yfirvöldum innsýn varðandi skipulagningu mögulegra hryðjuverkaárása í framtíðinni.Uppfært: Fyrirsögn fréttarinnar var breytt.
Donald Trump Mest lesið Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Innlent Skiptast á eldflaugum í massavís Erlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Erlent Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Erlent Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Innlent Jörðin fær tímabundið annað tungl Erlent Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Innlent Fleiri fréttir Marxisti kjörinn forseti Srí Lanka Segir að Hezbollah muni skilja skilaboðin Fimmtíu og einn látinn eftir sprengingu í námu Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Jörðin fær tímabundið annað tungl Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Skiptast á eldflaugum í massavís Konur og börn meðal látinna þegar Hezbollah-leiðtoga var ráðinn bani Ríkisstjórn mynduð í Frakklandi Skorar á Trump í aðrar kappræður Diddy á sjálfsvígsvakt Senda svifsprengjur fyrir F-16 Repúblikanar áhyggjufullir vegna „svarta nasistans“ Óþekkt tónverk eftir Mozart fannst Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Samþykkja frumvarp um aukna gæslu fyrir Trump og Harris Útskrifuð af sjúkrahúsi með hálskraga Felldu einn af leiðtogum Hezbollah Sýndu fyrstu myndböndin í dómsal Hnífjafnt á landsvísu en Harris með forskot í Pennsylvaníu Fógeti skaut dómara Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Ísraelar gera umfangsmiklar loftárásir á skotmörk í Líbanon Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Sjá meira