Kim Kardashian lýsir árásinni í smáatriðum Ritstjórn skrifar 16. janúar 2017 18:30 Kim var á baðsloppnum þegar ráðist var að henni. Mynd/Getty
Talið er að skýrsla sem tekin var af Kim Kardashian rétt eftir vopnað rán í París í október síðast liðinn hafi lekið til fjölmiðla. Það var dagblaðið Le Journal du Dimanche sem birti skýrsluna fyrst. Samkvæmt henni var Kim á baðsloppnum einum klæða þegar mennirnir réðust upp í herbergið hennar þar sem hún var ein síns liðs. Í skýrslunni koma fram upplýsingar sem áður voru ókunnar almenningi, meðal annars hverju var stolið og hvernig ræningjarnir komu fram við Kim. Í skýrslunni segir að Kim hafi heyrt í einhverjum frammi á hótelganginum. Hún hafi kallað fram en enginn svaraði. Þá hringdi hún í lífvörðinn sinn og bað hann um að koma. Strax í kjölfarið ruddust tveir menn klæddir í lögreglubúninga inn á herbergið hennar. Á þeim tíma var Kim í baðslopp og í engu undir. Þeir heimtuðu að fá demantshringinn hennar. Hún þóttist ekki vita um hvað þeir væru að tala en svo beindu þeir byssu að henni og bentu á trúlofunarhringinn hennar sem lá á náttborðinu. „Á meðan þeir beindu byssunni að mér tóku þeir hringinn og spurðu mig hvar restin af skartgripunum og peningarnir væru. Þeir tóku mig þá fram á gang en svo aftur inn í herbergi þar sem þeir hentu mér á rúmið og bundu hendurnar mínar,“ segir Kim í skýrslunni. Þeir teipuðu einnig lappirnar hennar og yfir munninn hennar og settu hana í baðkarið inni á herberginu. Í kjölfarið tóku þeir demantshálsmen, Rolex úr, tvö demantsarmbönd, demantseyrnalokka og hálsmenn sem stóð á Saint úr demöntum. Þegar skýrslan var tekin taldi hún að tjónið væri umm á fimm milljónir dollara. Fjórir hafa verið handteknir grunaðir um að hafa átt aðild að verknaðinum.
Mest lesið Cheryl sögð vera ólétt Glamour M.I.A. í samstarfi við H&M. Glamour Brad Pitt sést opinberlega í fyrsta skiptið frá skilnaðarfréttunum Glamour Bráðum verður hægt að versla á Instagram Glamour Bradley Cooper og Jake Gyllenhaal lesa hlutverk Cher Glamour Febrúarblað Glamour er komið út Glamour Bpro dreifingaraðili ársins hjá LabelM Glamour Bótox í hársvörðinn er nýjasta æðið Glamour Mæðgurnar Beyoncé og Blue Ivy í stíl í Gucci Glamour Slegist um að klæða Caitlyn Glamour