Geir Sveinsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta, hefur valið þá átján leikmenn sem fara með íslenska landsliðinu á æfingamótið í Danmörku sem hefst á fimmtudaginn en lýkur á sunnudaginn.
Að viðhöfðu samráði við læknateymi landsliðsins var ákveðið að Aron Pálmarsson færi ekki til Danmerkur vegna meiðsla. Hann verður í áframhaldandi meðferð hér á landi fram yfir næstu helgi en þá kemur í ljós hvort hann geti tekið þátt á HM í Frakklandi.
Geir fækkar nú um fjóra í hópnum en þeir Sveinbjörn Pétursson, Stefán Rafn Sigurmannsson, Guðmundur Árni Ólafsson og Geir Guðmundsson detta nú allir út.
Þetta verða síðustu leikir íslenska liðsins fyrir Heimsmeistaramótið í Frakklandi sem hefst síðan í næstu viku en fyrsti leikur íslenska liðsins er á móti Spánverjum í Metz 12. janúar.
Geir var búinn að velja 23 manna æfingahóp og misstu því fimm leikmenn af möguleikanum að fara með íslenska liðinu á HM. Allur hópurinn var búinn að æfa saman frá því í gær mánudaginn.
Mikil óvissa hefur verið í kringum stöðuna á þeim Aroni Pálmarssyni, Ásgeiri Erni Hallgrímssyni og Arnóri Atlasyni sem hafa allri verið að glíma við leiðinleg og langvinn meiðsli. Ásgeir Örn og Arnór fara báðir með og eru því leikfærir en nú bíða menn bara og sjá hvað gerist með Aron.
Íslenska landsliðið mætir Spáni, Slóveníu, Túnis, Angóla og Makedóníu í riðlakeppni HM í handbolta í Frakklandi en fjórar efstu þjóðirnar komast síðan í sextán liða úrslit.
Hér fyrir neðan má sjá íslenska hópinn.
Leikmannahópur Íslands á æfingamótinu:
Markmenn
Aron Rafn Eðvarðsson, Bietigheim
Björgvin Páll Gústavsson, Bergischer HC
Línumenn
Arnar Freyr Arnarsson, Kristianstad
Bjarki Már Gunnarsson, Aue
Kári Kristján Kristjánsson, ÍBV
Vignir Svavarsson, Team Tvis Holstebro
Vinstri hornamenn
Bjarki Már Elísson, Fuchse Berlin
Guðjón Valur Sigurðsson, Rhein-Neckar Löwen
Hægri hornamenn
Arnór Þór Gunnarsson, Bergischer HC
Vinstri skytttur
Guðmundur Hómar Helgason, Cesson Rennes
Ólafur Andrés Guðmundsson, Kristianstad
Tandri Konráðsson, Skjern
Leikstjórnendur
Arnór Atlason, Aalborg Håndbold
Gunnar Steinn Jónsson, Kristianstad
Janus Daði Smárason, Haukar
Hægri skyttur
Ásgeir Örn Hallgrímsson, Nimes
Ómar Ingi Magnússon, Aarhus Håndbold
Rúnar Kárason, Hannover/Burgdorf
Þessir duttu út úr æfingahópnum núna:
Sveinbjörn Pétursson, Stjarnan
Stefán Rafn Sigurmannsson, Aalborg Håndbold
Guðmundur Árni Ólafsson, Haukar
Geir Guðmundsson, Cesson Rennes
Þessir voru á 28 manna lista en komust ekki í æfingahópinn:
Grétar Ari Guðjónsson, Haukar (markvörður)
Hreiðar Levý Guðmundsson, Halden (markvörður)
Elvar Örn Jónsson, Selfoss
Óðinn Þór Ríkharðsson, FH
Sigurbergur Sveinsson, ÍBV
Aron fer ekki með landsliðinu til Danmerkur | Fjórir dottnir út
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
