Eiður Smári kynntur inn með Víkingaklappinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. desember 2016 18:56 Eiður Smári Guðjohnsen með Meistaradeildarbikarinn. Vísir/AFP
Eiður Smári Guðjohnsen verður aðalgesturinn í Fantasy Football show fyrir Meistaradeild Evrópu í þessari viku en þá fer fram lokaumferð riðlakeppninnar. UEFA auglýsti komu Eiðs Smára með beinni vísun í ævintýri hans með íslenska landsliðinu í fótbolta á EM í Frakklandi í sumar. Eiður Smári fór að sjálfsögðu fyrir Víkingaklappinu með þáttarstjórnendum Fantasy Football show. Það má sjá þessa skemmtilegu auglýsingu hér fyrir neðan. Eiður Smári hefur spilað með fimm af þeim liðum sem verða í sviðsljósinu næstu tvö kvöld eða liðunum Barcelona, PSV Eindhoven, Monakó, Tottenham og Club Brugge. Eiður hefur síðan spilað á móti flestum hinna. Eiður Smári hefur bæði spilað flesta leiki í Meistaradeildinni (45) og skorað flest mörk í Meistaradeildinni (7) af íslenskum fótboltamönnum. Hann vann Meistaradeildina með Barcelona 2009 en það tímabil spilaði hann einmitt sína síðustu leiki í Meistaradeildinni. Lokaleikur Eiðs Smára í Meistaradeildinni var 6. Maí 2009 þegar hann kom inn á sem varamaður í liði Barcelona á móti hans gömlu félögum í Chelsea og á hans gamla heimavelli Stamford Bridge. Eiður Smári var í hópnum í úrslitaleiknum á móti Manchester United 27. maí 2009 en kom ekki við sögu 2-0 sigri Barca á Ólympíuleikvanginum í Róm.
Fótbolti Meistaradeild Evrópu Mest lesið Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Fótbolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira