Hiti fór yfir 20 stig á Austurlandi í kvöld Birgir Olgeirsson skrifar 24. nóvember 2016 23:34 Hér er yfirlitsmynd yfir Austfirði, en á myndinni má sjá Dalatanga, Seyðisfjörð og Loðmundarfjörð. Vísir/Pjetur
Hiti fór yfir 20 stig á Dalatanga á Austurlandi í kvöld. Hitinn fór upp undir 20 gráðurnar klukkan átta í kvöld en núna um ellefu leytið sýndi sjálfvirkur mælir á Dalatanga 20,1 gráðu. Á Eskifirði fór hiti mest í 18,6 gráður og 17,6 gráður við Bjarnarey. Það hefur því verið sumarhiti á svæðinu en veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands lýsti þessari „hitabylgju“ sem týpískum hnúkaþey, það er að segja hlýr og þurr vindur sem blæs yfir svæðið af fjöllum að því er fram kemur á Vísindavef Háskóla Íslands. Hefur suðvestan átt verið ríkjandi á svæðinu í kvöld en það mun kólna fljótt aftur nótt og frystir annað kvöld. Á morgun má búast við vestan átt, 18 – 25 metrum á sekúndu og él norðaustan til undir morgun. Annars norðvestan 5 – 15 metrar á sekúndur en dregur úr vindi og léttir til þegar líður á morgundaginn, en áfram hvasst út við austur ströndina. Frystir víðast var seinni partinn á morgun.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ laugardag:Hægir vindar, víða bjartviðri og frost 1 til 6 stig, en gengur í suðaustan 8-13 m/s með slyddu eða rigningu S- og V-lands um kvöldið og hlýnar þar.Á sunnudag:Suðlæg átt, 10-15 m/s og rigning með köflum, en hægara og þurrviðri N- og A-lands. Hiti 1 til 8 stig, hlýjast nyrst, en kólnar um kvöldið.Á mánudag:Sunnan- og suðvestan 8-13 m/s og él, en bjartviðri á N- og A-landi. Kólnandi veður.Á þriðjudag:Vestlæg eða breytileg átt og stöku él, en gengur í norðaustanátt með éljagangi NV-til um kvöldið. Svalt í veðri.Á miðvikudag:Breytilegar átti og él víða um land, en vaxandi norðanátt seinni partinn. Kólnandi veður.Á fimmtudag:Útlit fyrir norðanátt með éljum fyrir norðan, en bjartviðri syðra og harðnandi frost.
Veður Mest lesið Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Erlent Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Innlent „Dýrlegt veður eins langt og séð verður“ Veður Fleiri fréttir Laupur stelur senunni í Árbæjarlaug Bein útsending: Ísland og Norðurslóðir í nýjum heimi – Ógnir og öryggi, áskoranir og tækifæri Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Vara við bikblæðingum á Bröttubrekku Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Fórnuðu gömlu húsi fyrir slökkviliðsæfingu Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Ófremdarástand á Hverfisgötu og verðhækkanir á grillmat „Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“ Þingmenn vilja vita meira um hvers vegna Úlfar hætti störfum Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Fjórtán hvíldartímabrot á 28 dögum Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sjá meira