Bolt fær að æfa með Dortmund Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. nóvember 2016 20:30
Spretthlauparinn Usian Bolt fær tækifæri til að æfa með þýska fótboltaliðinu Borussia Dortmund. Þetta staðfesti Hans-Joachim Watzke, stjórnarformaður Dortmund, í samtali við Kicker. Bolt er mikill fótboltaáhugamaður og hefur íhugað að reyna fyrir sér í þeirri íþrótt þegar hlaupaskórnir fara á hilluna eftir HM á næsta ári. Bolt er með samning við þýska íþróttavörufyrirtækið Puma. Stjórnarformaður Puma, Björn Gulden, situr í stjórn Dortmund og hann kom því í kring að Jamaíkumaðurinn fengi að æfa með aðalliði Dortmund. Þótt Bolt fái að æfa með liðinu fær hann ekki samning hjá Dortmund. Watzke tók það alveg skýrt fram. „Við þurfum ekki ræða um að hann fái samning. En það er heiður að hann vilji æfa með okkar,“ sagði Watzke. Bolt er einn fremsti íþróttamaður sögunnar en hann á heimsmetið í bæði 100 og 200 metra hlaupi. Hann hefur unnið til níu gullverðlauna á Ólympíuleikum og 11 gullverðlauna á HM.
Frjálsar íþróttir Þýski boltinn Mest lesið Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Fótbolti Ótrúleg endurkoma Feyenoord í Manchester Fótbolti Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Fótbolti Vaknaði með harðsperrur: „Þetta var bara stórkostlegt“ Körfubolti Uppgjörið: FH - Fenix Toulouse 25-29 | Tap í síðasta Evrópuleik FH-inga Handbolti Arnar betur í stakk búinn en Eyjólfur og Arnar Þór Fótbolti Baldur galdraði fram vörnina sem sló Ítalina kalda Körfubolti Albert sá sögulegan sigur strákana okkar og Martin stríddi Ítölum Körfubolti Harry Potter í ástralska landsliðinu Sport HK gaf leik gegn Herði: „Ekki nýtt vandamál fyrir okkur á landsbyggðinni“ Handbolti Fleiri fréttir „Höfum sýnt að þetta er getustigið sem við getum spilað á“ Lewandowski sá þriðji til að skora hundrað Meistaradeildarmörk Atlético skoraði sex Ótrúleg endurkoma Feyenoord í Manchester Skytturnar léku á als oddi Eiður Aron áfram á Ísafirði Hareide þarf að leggjast undir hnífinn Liverpool væri bara í þrettánda sæti án markanna hans Mo Salah Andri Rúnar í Stjörnuna Hvorki Arnar né Freyr heyrt frá KSÍ Kæra framleiðendur Lionel Messi drykkjarins fyrir stuld Arnar betur í stakk búinn en Eyjólfur og Arnar Þór Aðeins Heimir og Lagerbäck með betri árangur á öldinni „Fann brosið mitt á ný“ Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Carragher segir Salah vera eigingjarnan Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Elías Rafn hélt hreinu þegar meistararnir jöfnuðu toppliðið að stigum Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Hareide hættur með landsliðið Grindvíkingar þétta raðirnar Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Sjá meira