Blöndun lífeldsneytis kostaði 1,1 milljarð í fyrra Finnur Thorlacius skrifar 1. nóvember 2016 09:37 Fjármunir streyma úr landi, ríkissjóður tapar, bíleigendur tapa og vegakerfið fær ekki peninginn eins og af hefðbundnu eldsneyti.
Á kjörtímabilinu 2009 til 2013 var tekin um það ákvörðun að ríkissjóður myndi styrkja innflutning á svonefndu endurnýjanlegu eldsneyti á bíla sem unnið er úr matjurtum, þ.e. lífeldsneyti á borð við lífdísil og etanól. Það var gert með því að fella niður sérstaka eldsneytisskatta af þessu eldsneyti. Kolefnisgjald, almennt vörugjald, sérstakt vörugjald og olíugjald. Þessi ríkisstyrkur er um 70 krónur á hvern lítra lífeldsneytis. Um leið voru settar sérstakar kvaðir í lög sem þvinguðu seljendur eldsneytis til slíkrar íblöndunar. Þessi skattívilnun rennur úr landi í formi hærra innkaupsverðs og minna orkuinnihalds hins endurnýjanlega eldsneytis og kemur því bíleigendum ekki til góða í lægra eldsneytisverði og ekki fer hún í endurbætur á vegakerfi landsins eins og sérstökum bensínsköttum var upphaflega ætlað. Þegar ákveðið er að nota peninga skattgreiðenda til að ná ákveðnum markmiðum er mikilvægt að kannað sé hvaða leið er hagkvæmust því oftast koma fleiri en ein leið til greina.Fjármunir streyma úr landi og bíleigendur tapa Í upplýsingum frá Fjármála- og efnahagsráðuneytinu kemur fram að á síðasta ári nam þessi skattaívilnun 1,1 milljarði króna. Fjármunir streyma úr landi, ríkissjóður tapar, bíleigendur tapa, vegakerfið fær ekki peninginn og miðað við að bílar eru aðeins með 4% af árlegum útblæstri CO2 er ávinningurinn fyrir umhverfið augljóslega hverfandi jafnvel þótt menn trúi því að lífeldsneytið dragi úr losun, sem er þó umdeilt. Hámarksárangur með þessari íblöndun innflutts lífeldsneytis er samdráttur í losun um 30 þúsund tonn CO2 á ári sem er um 0,2% af árlegum heildarútblæstri. Þá er miðað við þær gríðarlega hagstæðu forsendur fyrir lífeldsneytið að útblástur CO2 frá því sé enginn.Framræst land 70% losunar CO2 Að þessum forsendum gefnum er kostnaðurinn við að draga úr útblæstri með íblöndun innflutts lífeldsneytis um 35 þúsund krónur á hvert tonn CO2. Er þetta mikill eða lítill kostnaður? Ein leið til að meta það er að bera hann saman við kostnað við aðrar leiðir að sama marki. Langstærsta uppspretta gróðurhúsalofttegunda af manna völdum hér á landi er framræst land. Framræsta landið er talið með um 70% af árlegri losun. Hægt er að stöðva þessa miklu losun með endurheimt votlendis en mikill meirihluti hins framræsta lands er ekki nýtt sem ræktarland í landbúnaði. Endurheimt votlendis hefur auk þess fjölmargar aðrar jákvæðar afleiðingar á borð við aukið fuglalíf og jákvæð áhrif á vatnsbúskap áa og vatna og þar með lífsskilyrði fiska. Ræktun matjurta til framleiðslu á lífeldsneyti krefst þess hins vegar að land sé rutt undir nýja akra og þar með gengið á lífríkið.2000 sinnum dýrari aðferð Í skýrslunni „Endurheimt votlendis“ sem umhverfisráðuneytið gaf úr fyrr á árinu er mat lagt á kostnað við endurheimt votlendis og niðurstaðan sú að kostnaðurinn sé 16 krónur á hvert tonn CO2. Það er með öðrum orðum ríflega 2000 sinnum dýrara að nota íblöndun lífeldsneytis til að draga úr losun en með því að endurheimta votlendi. Og þessi niðurstaða fæst með því að gefa sér gríðarlega jákvæðar forsendur fyrir árangrinum af íblönduninni. Það var löngu orðið ljóst að íblöndun innflutts lífeldsneytis er sóun á skattfé almennings. Nú liggur einnig fyrir að hægt væri að ná 2000 sinnum meiri árangri í samdrætti gróðurhúsalofttegunda fyrir þetta fé með því að fara aðra leið þ.e. endurheimta votlendi.
Mest lesið Segist vita hver vó Geirfinn Innlent Vita ekki hvað fór úrskeiðis Innlent Airbus-þota Icelandair flaug í fyrsta sinn í dag Innlent Ógildu lögin gætu bakað ríkinu skaðabótaskyldu Innlent Stofnandi World Wrestling Entertainment verður menntamálaráðherra Erlent Miðflokksmenn séu mestu vælukjóarnir Innlent Fern ný jarðgöng undirbúin meðan Fjarðarheiðin bíður Innlent Skallaði lögreglumann sem hugðist hafa af honum afskipti Innlent „Það var reitt hátt til höggs“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent