Mjög þreyttir á skráningu marka í Pepsi-deildinni | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 12. september 2016 13:00
Skráning marka í Pepsi-deildinni er hlutur sem fer fyrir brjóstið á strákunum í Pepsi-mörkunum og þá sérstaklega Herði Magnússyni, umsjónarmanni þáttarins. Nokkur mörk hafa litið dagsins ljós í deildinni sem voru furðulega skráð og eru það jafnvel enn þá. Garðar Gunnlaugsson er búinn að skora fjórtán mörk fyrir ÍA en eitt þeirra „skoraði“ Skagamaðurinn eftir að boltinn var augljóslega kominn yfir línuna. Ekki er búið að breyta þeirri skýrslu. Markanefndin tók mark af Ármanni Smára Björnssyni, miðverði ÍA, eftir að Pepsi-mörkin bentu á að þar væri um sjálfsmark að ræða hjá fyrirliða Valsmanna. Þá stendur mark Finns Orra Margeirssonar enn þá fyrir KR gegn Stjörnunni en hann skaut í tvo Stjörnumenn og inn. „Af því Finnur Orri var ekki búinn að skora í efstu deild fær hann þetta mark skráð á sig þó boltinn fari í tvö Stjörnumenn,“ sagði Hörður Magnússon í Pepsi-mörkunum í gærkvöldi. Hann er tilbúinn að taka það að sér ásamt sérfræðingum Pepsi-markanna að greina mörkin þannig rétt verði rétt. „Við værum frábærir í þetta en við myndum taka eitthvað fyrir. Ég hef mikla reynslu af því að fá á mig mörk og þú hefur skorað mörk. Þetta væri skemmtilegt starf, en ég er sammála þessu, ég vil hafa hlutina rétta,“ sagði Hjörvar Hafliðason. Alla umræðuna má sjá í spilaranum hér að ofan.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Fjórar vafasamar ákvarðanir dómarans í Árbænum | Myndband Pétur Guðmundsson missti af tveimur vítaspyrnum sem Ólsarar áttu að fá gegn Fylki og gaf heimamönnum eina mjög mjúka. 12. september 2016 11:00 Mest lesið Tindastóll - Stjarnan 103-88 | Stólarnir lifa góðu lífi Körfubolti Arsenal fékk ekki annað víti og allt jafnt fyrir seinni slaginn Fótbolti Lætur umræðu síðustu daga sem vind um eyru þjóta: „Gullið tækifæri Körfubolti Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Enski boltinn Neuer eignaðist niðurlægjandi met Fótbolti Bjartsýnn á að spila aftur eftir þriggja hæða fall Golf Tilvistarkreppa LIV-mótaraðarinnar heldur áfram Golf Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Körfubolti Baldvin og Andrea fögnuðu sigri í fyrsta míluhlaupinu Sport Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Fótbolti Fleiri fréttir Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heimaleik Breiðablik - Fram 2-0 | Sól og Líf í Kópavogi Annasamt á skrifstofum Keflavíkur: Conteh kominn að láni og Daníel Guðni verður áfram „Við hlógum bara að því“ Anton Ari í Kópavogi til 2028 Illa farið með Þórsara: „Þetta er bara rangt“ Arnór Ingvi ætti að vera klár fyrir Valsleikinn Gerði umdeilda skiptingu: „100 prósent pirraður og ég skil hann vel“ Sjáðu öll 26 mörkin úr Bestu deildinni í gær Sölvi Geir: Fengum hann til félagsins út af þessu FH spilaði í blárri Henson treyju: „Við vildum ekki fara bara í einhvern lit“ Skaðbrenndur Hemmi fer ekki aftur í eldhúsið Stjarnan - Valur 2-4 | Stórskemmtun í suddanum á Samsung KR - FH 4-2 | Frábærir KR-ingar Alexander Linta: Stjórnin er að skoða styrkingu á leikmannahópnum Albert lenti í slysi með sleikjó og braut framtönn Breiðablik - Þór Ak. 4-0 | Sóknarleikur Blika vaknaði með látum Víkingur R. - ÍA 4-0 | Víkingar kafsigldu Skagamenn í seinni Fram - ÍBV 5-1 | Framarar með flugeldasýningu gegn vonlausum Eyjamönnum Hefur Valur efni á að spila Samúel í kvöld? Mikilvægt að endurræsa myndlykilinn Sjáðu mörkin fyrir norðan og svakalegt fagn Davíðs „Eins og sprengjum væri varpað á völlinn því það brjáluðust allir“ Umfjöllun og viðtöl: KA 1-2 Keflavík | Fyrsti sigur Keflavíkur Hallgrímur Jónasson: „Staðan er bara alvarleg“ Fékk rautt fyrir að rífa í hár mótherja: „Þetta er alveg galið“ Sjáðu öll mörkin úr Bestu deild kvenna: Draumabyrjun nýliðanna og dramatík fyrir norðan Uppgjörið: Valur 2-1 Grindavík/Njarðvík | Ísabella Sara hetja Valskvenna Uppgjörið: Þór/KA 1-1 FH | Dramatískt jöfnunarmark og töpuð stig Sjá meira
Fjórar vafasamar ákvarðanir dómarans í Árbænum | Myndband Pétur Guðmundsson missti af tveimur vítaspyrnum sem Ólsarar áttu að fá gegn Fylki og gaf heimamönnum eina mjög mjúka. 12. september 2016 11:00