Cox var þingkona Verkamannaflokksins og andvíg aðskilnaði, svokölluðu Brexit. Thomas Mair, sem ákærður hefur verið fyrir morðið, mætti fyrir dóm á laugardag. Spurður til nafns svaraði hann: „Drepum svikara, frelsi fyrir Bretland!“
Aðeins þrír dagar eru nú í að kosið verði um framtíð Bretlands innan Evrópusambandsins og var kosningabarátta beggja fylkinga á fullu skriði í gær.
Nigel Farage, formaður Sjálfstæðisflokks Bretlands og Brexit-sinni, sagði í gær að Vote Leave gæti enn borið sigur úr býtum en að morðið á Cox hefði haft umtalsverð áhrif á kosningabaráttuna. „Við vorum með vindinn í bakið þar til þessi harmleikur átti sér stað. Þegar þú tekst á við yfirvaldið verður þú að hafa meðbyr,“ sagði Farage.

David Cameron forsætisráðherra og George Osborne fjármálaráðherra voru harðorðir í garð stuðningsmanna Vote Leave í gær. Cameron sagði Breta geta valið um tvo valkosti. Annars vegar sýn Nigel Farage „sem færir Bretland aftur í fortíðina og sundrar frekar en að sameina“ og hins vegar „opið, frjálslynt Bretland, land sem kennir minnihlutahópum ekki um vandamál sín og lítur til framtíðar frekar en fortíðar“.
Þá varaði Osborne við efnahagslegum áhrifum Brexit. „Þetta er hlið inn í mun óöruggari heim þar sem störf fólks eru í hættu,“ sagði Osborne. „Hóflegt mat er að verg landsframleiðsla okkar væri fimm til sex prósentum minni,“ sagði hann einnig.
44 prósent aðhyllast hvora hlið málsins samkvæmt meðaltali skoðanakannana sem Financial Times tekur saman.
Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 20. júní