Sjá einnig:Blatter: Ég get ekki fylgst með öllum allan daginn
Platini bað Blatter að hætta
Þessir atburðir hafa gjörbreytt landslaginu í forsetakjöri FIFA sem fram fer í dag. Fyrir nokkrum dögum var talið nær öruggt að Sepp Blatter yrði endurkjörinn og myndi sitja sitt fimmta kjörtímabil á forsetastóli en hann tók við forsetaembættinu 1998 af læriföður sínum, Brasilíumanninum João Havelange.
Í dag gætu því orðið, að flestra mati löngu tímabærar, breytingar á forystusveit FIFA sem hefur legið undir ámæli fyrir spillingu síðustu árin og áratugina.
Á blaðamannafundi í gær lýsti Michel Platini, forseti UEFA, því yfir að aðildarþjóðir sambandsins hefðu komist að þeirri niðurstöðu að styðja Ali bin Hussein Jórdaníuprins gegn Blatter í forsetakjörinu í dag. Aðildarþjóðir UEFA eru 53 en Platini gerir ráð fyrir að 45-46 þeirra kjósi prinsinn. KSÍ er hluti af UEFA.
Upphaflega buðu fimm manns sig fram gegn Blatter; Ali prins, Luís Figo, David Ginola, Jérôme Champagne og Michael van Praag. Nú stendur Hussein einn eftir gegn hinum 79 ára gamla Blatter og á allt í einu raunhæfa möguleika á að velta hinum þaulsætna Svisslendingi af stalli sínum.

„Ég segi þetta með tárin í augunum en skandalarnir hjá FIFA, móður fótboltans, eru of margir,“ sagði Platini á blaðamannafundinum í gær.
Þar lýsti hann því einnig yfir að hann hefði farið á fund Blatters og beðið hann að segja af sér.
„Ég bað hann um að segja af sér því þetta gengur ekki svona lengur,“ sagði Platini og bætti við: „Fólk er búið að fá nóg af Sepp Blatter. Það vill hann ekki lengur og við viljum hann ekki lengur,“ sagði Platini.
Sjá einnig:Platini útilokar ekki að UEFA-löndin sniðgangi HM verði Blatter endurkjörinn
„Blatter sagði mér að það væri of seint fyrir hann að hætta þar sem þingið hefst á morgun (í dag). Við hjá UEFA styðjum Ali prins og við biðjum aðra innan FIFA að gera það líka,“ sagði Platini enn fremur.
En hver er þessi Ali prins sem Evrópa ætlar að veðja á gegn Blatter og gæti orðið valdamesti maður fótboltaheimsins í dag?
Konungborinn frambjóðandi

Ali bin Hussein fæddist í Amman, höfuðborg Jórdaníu, á Þorláksmessu 1975 og verður því fertugur síðar á árinu. Hann er sonur Husseins, Jórdaníukonungs á árunum 1952-1999, og Aliu, þriðju konu hans sem lést í þyrluslysi tveimur árum eftir að Ali fæddist. Hálfbróðir Alis, Abdullah II, tók við konungstigninni í Jórdaníu að föður þeirra látnum 1999.
Ali nam bæði við skóla í Bretlandi og Bandaríkjunum og var um tíma í jórdönsku sérsveitinni. Á árunum 1999-2008 starfaði hann í öryggisþjónustu bróður síns.
Sjá einnig:Geir kallar eftir breytingum innan FIFA: Þetta er óþolandi staða
Ali hefur verið forseti jórdanska knattspyrnusambandsins síðan 1999 og er einnig stofnandi og forseti knattspyrnusambands ríkja í Vestur-Asíu. Hann er sömuleiðis einn af átta varaforsetum FIFA og hefur setið í því embætti frá 2011. Í byrjun árs 2015 tilkynnti hann svo um framboð sitt til forseta FIFA.
Allt frá upphafi hefur Ali prins notið stuðnings Michels Platini sem lýsti strax yfir ánægju sinni með framboð Jórdaníuprinsins. „Ég er ekki með atkvæðisrétt en ég styð hann í kjörinu. Ég er þess fullviss að Ali, sem ég hef þekkt lengi, gæti orðið frábær forseti FIFA. Hann býr yfir öllum nauðsynlegum eiginleikum til að gegna embættinu,“ sagði Platini fyrr í vikunni.

Hingað til hefur Ali spilað á réttu strengina. Hann hefur talað um að það sé kominn tími á breytingar hjá FIFA og að það þurfi að hreinsa spillinguna út. Hann lofar auknu gagnsæi og hefur kallað eftir því að skýrsla bandaríska lögmannsins Michaels Garcia um spillingu innan FIFA verði gerð opinber.
Prins Ali hefur einnig lofað því að fjölga þátttökuliðum á heimsmeistaramótinu úr 32 í 36 verði hann kosinn. Þetta er reyndar þekkt kosningabragð sem Havelange og Blatter beittu sjálfir á sínum tíma til að styrkja stöðu sína í Asíu og Afríku.
Hvað hefur Ali mörg atkvæði?
Það er svo spurning hvort þessi málflutningur dugi til að velta Blatter úr sessi. Ali prins nýtur stuðnings Evrópu og telur sig hafa um 60 atkvæði frá löndum utan Evrópu, þar á meðal í Asíu og Vestur-Afríku. Þá á hann atkvæði þeirra þjóða sem voru búnar að lýsa yfir stuðningi við Figo og Van Praag vís. Aðildarþjóðir FIFA eru 209 talsins.
Blatter er klækjarefur mikill og kann öll trixin í bókinni. En andstaðan hefur aldrei verið jafn mikil og nú og stundin sem margir hafa beðið eftir gæti runnið upp í dag. Dagar Blatters á forsetastóli FIFA eru mögulega taldir.