Frost, snjókoma og hvassviðri í kortunum: Vetrarveðrið handan við hornið Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 26. nóvember 2015 11:04 Það er spáð snjókomu fyrir norðan í dag og éljagangi sunnanlands. vísir/vilhelm
Veðurstofan spáir kólnandi veðri í dag og á morgun og allt að 10 stiga frosti. Þá byrjar að snjóa fyrir norðan í dag og spáð er éljum sunnanlands. Birta Líf Kristinsdóttir, veðurfræðingur, birti í gær færslu á Facebook-síðu sinni Veðurlíf þar sem hún segir að nóg verði að gerast í veðrinu í dag. Ekki er nóg með að það kólni og byrji að snjóa heldur er spáð hvassviðri um land allt, jafnvel stormi á stöku stað. „Um hádegi snýst í hvassa norðaustlæga átt með snjókomu og skafrenningi á Vestfjörðum. Norðanáttin dreifir síðan úr sér yfir N-vert landið annað kvöld [innsk. föstudag] með snjókomu, en dregur þó úr styrknum. Ljóst er að færðin verður ekki upp á marga fiska fyrir norðan. Með öðrum orðum vetrarveður á Íslandi!“Veðurhorfur næsta sólarhringinn samkvæmt veðurspá Veðurstofu Íslands: Suðvestan 13-20 m/s og él, en léttskýjað A-lands. Norðlægari og snjókoma á Vestfjörðum og Ströndum. Hægari seint í dag, víða snjókoma fyrir norðan og él sunnantil. Kólnandi veður, vægt frost í kvöld. Norðaustan 8-13 og snjókoma eða él á morgun. Hægari á sunnanverðu landinu og þurrt að mestu eftir hádegi. Frost 1 til 10 stig. Nóg að gerast í veðrinu á morgun - kólnandi veður, hálka, snjór, skafrenningur og hvassviðri. Í kvöld og nótt hvessir,...Posted by Veðurlíf on Wednesday, 25 November 2015
Veður Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Fá engar bætur fyrir stolin bíl Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn Innlent Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Innlent Fleiri fréttir Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolin bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Yfir þrjú hunduð eftirskjálftar Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Sjá meira