Skoðun

Eldvarnir í brennidepli á Skaganum

Regína Ásvaldsdóttir og Garðar H. Guðjónsson skrifar

Eldvarnir eru í brennidepli hjá Akraneskaupstað og starfsfólki hans um þessar mundir. Í samræmi við samkomulag Akraneskaupstaðar og Eldvarnabandalagsins um eflingu eldvarna fær allt starfsfólk bæjarins nú fræðslu um eldvarnir bæði á vinnustað og heima. Fyrir dyrum stendur jafnframt innleiðing eigin eldvarnaeftirlits hjá stofnunum bæjarins. Þar gegna eldvarnafulltrúar lykilhlutverki. Vaskur hópur karla og kvenna hefur þegar tekið að sér hlutverk eldvarnafulltrúa og munu Eldvarnabandalagið og Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar veita þeim nauðsynlega fræðslu og þjálfun.



Í innleiðingu eigin eldvarnaeftirlits felst skýr yfirlýsing um að efla eldvarnir með reglulegu eftirliti og viðhaldi. Markmiðið er að auka öryggi starfsfólks, nemenda og viðskiptavina og draga úr líkum á tjóni á rekstri og eignum.



Innleiðing eigin eldvarnaeftirlits hjá fyrirtækjum og stofnunum er eitt af áhersluverkefnum Eldvarnabandalagsins. Eldvarnabandalagið hefur útbúið fræðsluefni um eldvarnir heimilisins og eigið eldvarnaeftirlit og er stuðst við það í samstarfinu við Akraneskaupstað.

Rannsóknir Eldvarnabandalagsins og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna sýna að eldvarnir í leiguhúsnæði eru almennt lakari en hjá þeim sem búa í eigin húsnæði. Liður í samstarfi Akraneskaupstaðar og Eldvarnabandalagsins er að efla sérstaklega eldvarnir hjá þeim sem búa í leiguhúsnæði. Það verður gert með hvatningu og fræðslu í tengslum við umsóknir um húsaleigubætur hjá Akraneskaupstað í byrjun næsta árs. Megináhersla er í því sambandi lögð á að hafa nægilega marga virka reykskynjara svo íbúar geti sem fyrst orðið varir við eld og gert viðeigandi ráðstafanir til að vernda líf, heilsu og eignir.



Eldvarnir hjá Akraneskaupstað verða ekki óaðfinnanlegar á einni nóttu. Við bindum hins vegar miklar vonir við að með réttu hugarfari og samstilltu átaki stjórnenda og starfsmanna Akraneskaupstaðar, Eldvarnabandalagsins og Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar megi efla eldvarnir til muna á næstu mánuðum og misserum. Jafnframt væntum við þess að reynslan af samstarfinu á Skaganum geti nýst öðrum sveitarfélögum og fyrirtækjum við innleiðingu eigin eldvarnaeftirlits og í því skyni að auka vitund starfsmanna og annarra um mikilvægi eldvarna á heimilum og vinnustöðum.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×