Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar 25. september 2026 18:02 Það hefur vart farið fram hjá þeim sem fylgjast með opinberri umræðu hér á landi að samstillt átak virðist vera í gangi til að flæða yfir skoðanasíður miðlanna með fordæmingum á Ísrael. Færri virðast skrifa sem standa með Ísrael, en það er mikilvægt að fólk sem les þessar greinar fái upplýsingar frá þeim sem líta málið öðrum augum. Ég svaraði grein Hjálmtýs Heiðdals, formanns Félagsins Ísland–Palestína í gær en þar leyfði hann sér að skipta öllum sem efast um málflutning hans í hópa fáfróðra, rasista eða bókstafstrúaðra. Á sama tíma birtist enn eitt opna bréfið á sama miðli, nú frá Halldóru Haraldsdóttur. Halldóra skrifar undir sem fyrrverandi dósent og stillir upp formlegri heimildaskrá í lokin. Maður hefði haldið að fræðimaður myndi beita lágmarks heimildarýni áður en hann tekur tölur frá samtökum sem stjórnað er með harðri hendi af Hamas og birtir þær sem óyggjandi sannleika. En þegar betur er að gáð hrynur þetta yfirbragð eins og spilaborg. Helsta heimild Halldóru fyrir mannfallstölum er palestínska ríkisfréttastofan WAFA. En hvaðan fær WAFA sínar tölur? Beint frá heilbrigðisráðuneytinu á Gaza, sem lýtur fullri stjórn Hamas. Eins og óháðir fréttamiðlar á borð við Associated Press (AP) hafa margbent á, gera þessar tölur engan greinarmun á óbreyttum borgurum og vopnuðum liðsmönnum hryðjuverkasamtaka. Hver sá vígamaður sem fellur með vopn í hönd er skráður sem fórnarlamb stríðsins. Engu er heldur svarað um allan þann fjölda sem fallið hefur fyrir heimatilbúnum eldflaugum vígahópanna sjálfra sem sprungið hafa inni á Gaza. Að taka tölur frá stríðsaðila sem óyggjandi staðreyndir stenst enga fræðilega kröfu. Þá er tímatalið látið hefjast 7. október 2023, en algerlega þaggað niður hvað raunverulega hratt þessum atburðum af stað: að þúsundir vígamanna ruddust yfir landamærin, myrtu yfir 1.200 manns af botnlausri grimmd og rændu hundruðum gísla. Hvaða ríki í heiminum hefði setið hjá aðgerðalaust eftir slíka árás? Að krefjast friðar án þess að fordæma þau óhæfuverk sem hófu stríðið er í besta falli sjálfsblekking. Í greininni er einnig tíunduð eyðilegging innviða, en höfundur sleppir lykilatriðinu sem skilur á milli stríðsglæpa og lögmætra hernaðaraðgerða. Samkvæmt Genfarsamningunum missa skólar, sjúkrahús og íbúðarhús vernd sína í stríði að því leyti sem hernaðaraðilar nota þau sem skotstöðvar, vopnageymslur eða innganga í neðanjarðargöng. Hamas hefur kerfisbundið notað eigin borgara sem mannlega skjöldu. Ábyrgðin á þeirri eyðileggingu hvílir því fyrst og fremst á þeim sem breyttu heimilum borgara í vígvöll. Það er einfalt að krefjast þess að íslensk stjórnvöld 'beiti sleggjunni’ á Ísrael með viðskiptabanni og slitnum stjórnmálasamböndum. Það hefur ekkert með raunverulega mannúð að gera. Raunveruleg mannúð horfir á allar staðreyndir málsins, fordæmir hryðjuverk og viðurkennir rétt lýðræðisríkis til að verja líf borgara sinna. Friður næst aldrei í bergmálshelli þar sem aðeins einni hlið er hleypt að og staðreyndir eru látnar víkja fyrir tilfinningalegum upphrópunum. Höfundur er stofnandi Borgarahreyfingarinnar, fyrrverandi eigandi DV, fyrrverandi vinstrikona og síonisti. Heimildir og ítarefni: Associated Press (AP News): Umfjöllun um aðferðafræði og galla á mannfallstölum heilbrigðisráðuneytisins á Gaza („What is Gaza’s Ministry of Health and how does it calculate the war’s death toll?“). Alþjóðlegi Rauði Krossinn (ICRC): IV. Genfarsamningurinn (1949), 28. grein, og viðbótarbókun I (1977), 51. og 52. grein (um missi friðhelgi borgaralegra mannvirkja þegar þau eru nýtt í hernaðarlegum tilgangi og bann við mannlegum skjöldum). NATO StratCom COE: Skýrslur um kerfisbundna notkun Hamas á mannlegum skjöldum í þéttbýli á Gaza („Hamas' use of human shields in Gaza“). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun