Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna: Stúlkur brenndar lifandi í Suður-Súdan Atli Ísleifsson skrifar 1. júlí 2015 23:47 Stríð hefur staðið í Suður-Súdan frá árslokum 2013. Vísir/AP
Hermenn í Suður-Súdan hafa rænt og nauðgað fleiri hundruð stúlkna, auk þess að brenna margar þeirra lifandi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna um ástandið í Afríkuríkinu sem bendir til að ofbeldið í landinu hafi náð áður óþekktum hæðum. „Við verðum að fá ótakmarkaðan aðgang til að geta rannsakað þessar ásakanir,“ segir talsmaður Sameinuðu þjóðanna sem hefur rannsakað meinta glæpi stríðandi fylkinga í landinu. Skýrslan var birt fyrr í vikunni og byggir á viðtölum við 115 fórnarlömb og sjónarvotta frá Unity State í norðurhluta landsins þar sem harðir bardagar hafa staðið milli stjórnarhersins og sveita uppreisnarmanna að undanförnu. Í skýrslunni kemur fram að hermenn hafi rænt að minnsta kosti 172 stúlkum og konum og beitt þær grimmilegu ofbeldi. Fjölmargar hafi verið dregnar út af heimilum sínum og nauðgað, oft fyrir framan börn sín, af hópi hermanna. Þá séu dæmi um að margar þeirra hafi verið brenndar lifandi eftir að hafa verið nauðgað. Hundruð þúsunda manna hafa neyðst til að flýja heimili sín í landinu vegna stríðsins sem staðið hefur síðan desember 2013 eftir að Salva Kiir Mayardit, forseti landsins, sakaði þáverandi varaforsetann Riek Machar um tilraun til valdaráns.
Suður-Súdan Mest lesið Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Fleiri fréttir Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Sjá meira