Förðunarlína frá frönsku fyrirmyndinni Ritstjórn skrifar 24. júní 2015 12:00 Caroline de Maigret
Franska fyrirsætan, tónlistarkonan og tískufyrirmyndin Caroline de Maigret hefur hannað förðunarlínu í samstarfi við snyrtivörurisann Lancóme. Línan er væntanleg í verslanir í lok ágúst, og berst vonandi hingað heim líka. Caroline er þekkt fyrir sinn afslappaða franska stíl, er eftirlæti götutískuljósmyndara og í uppáhaldi hjá ljósmyndaranum Mario Testino og Karl Lagerfeld. Hún er einn af meðhöfundunum bókarinnar How to Parisian - wherever you are. Línan er að sjálfsögðu í frönskum stíl og hönnuð með það í huga að allt á að passa saman. Hún samanstendur af hinum fullkomnu rauðu tónum í naglalökkum, brúnum og ljósum litum í varalitum og mjúkum litum á augum. Einnig er að finna vínrauðan maskara sem að sögn Caroline yngir en hún notar sjálf aldrei svartan maskara bara vínrauðan eða brúnan. Þetta er spennandi samstarfsverkefni hjá Lancóme og við hlökkum til að berja afraksturinn augum. Flottur still Caroline vekur athygli. Thank you @lisaeldridgemakeup for the glam makeover #IconsOfStyle @michaelkors @vanityfair @eswmaui #LateDrunkBathroomSelfieAsIfYouCouldntTell A photo posted by Caroline de Maigret (@carolinedemaigret) on May 15, 2015 at 12:20am PDTFylgstu með Glamour á Facebook og Instagram.
Mest lesið Gullfoss og Geysir í aðalhlutverki hjá Mango Glamour Anna Wintour gefur Zoolander góð ráð Glamour Anna Faris og Chris Pratt skilin Glamour Kom klædd eins og Carrie Bradshaw Glamour „Lítur út eins og 75 ára gömul kona frá Miami.“ Glamour Nýr yfirhönnuður La Perla er með nýjar áherslur Glamour Ferðaðist til Íslands í síðkjól yfir æfingabol Glamour Tískan tekur yfir Kaupmannahöfn Glamour Beyonce mun koma fram á Grammy verðlaununum Glamour Raf Simons endurhannar Calvin Klein merkið Glamour