Frelsissvipting í Vogum á Vatnsleysuströnd: „Þeir létu mig drekka átta flöskur af smjörsýru” Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 12. júní 2015 21:30 Kristján Markús Sívarsson er einn af ákærðu í málinu. vísir/vilhelm
Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn Kristjáni Markúsi Sívarssyni og tveimur 19 ára drengjum var framhaldið í Héraðsdómi Reykjaness eftir hádegi í dag. Ákærðu gáfu skýrslu á mánudag og þriðjudag en í dag var komið að fórnarlambinu í málinu, 18 ára pilti sem segir þremenninga hafa ráðist á sig og svipt hann frelsi sínu í húsi í Vogum á Vatnsleysuströnd í ágúst á síðasta ári. Eru Kristján og drengirnir tveir ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, frelsissviptingu, ólögmæta nauðung og tilraun til fjárkúgunar. Pilturinn var beðinn um að lýsa atburðarásinni fyrir dómi í dag. Sagðist hann hafa komið í Voga ásamt félaga sínum sem hann hefði verið að djamma með dagana á undan.Réðust á hann um leið og hann kom innLýsti hann því að félagi hans hefði alltaf verið að tala um að Kristján vildi tala við hann. Hann sagði það svo hafa komið í ljós að annar félagi hans hefði stolið af honum PlayStation-leikjatölvu. „Ég sagði eitthvað við hann að Diddi [Kristján Markús] ætlaði að koma og sækja tölvuna. Það fréttist, Diddi fékk screenshot af því,” sagði pilturinn. Hann hafi svo farið í Voga og sagði að ákærðu hefðu ráðist á hann um leið og hann kom inn í húsið. Sagði pilturinn að Kristján hefði kýlt hann í gólfið og að þeir hafi talað um að taka reipi og binda hann niður. Það hafi hins vegar ekki verið gert þar sem þeir voru þrír á móti honum einum. Lét piltinn sleikja frunsu„Ég get ekki sagt nákvæmlega í hvaða röð þetta gerðist en ég get sagt hvað gerðist. Hinir strákarnir voru með rafbyssuna en Diddi var mest að kýla mig. Svo lætur Diddi mig sleikja frunsu sem er framan í honum. Þeir láta rafbyssu á kynfæri mín þannig að ég pissa á mig. Svo láta þeir mig sleikja hundapiss á gólfinu, hrækja á gólfið og láta mig sleikja það,” sagði pilturinn. Þá sagði hann ákærðu einnig hafa tekið sprautunál og sprautað í lærið á honum. Þeir hafi einnig tekið eldhúshníf og skorið í bakið á honum. „Þeir létu mig drekka átta flöskur af smjörsýru. [...] Svo eru þeir að kýla mig á fullu og láta mig syngja fyrir sig á meðan ég var grátandi.”Átti að borga Kristjáni hálfa milljónPilturinn sagði svo að í kjölfarið á árásinni hafi þremenningarnir búið til skuldir á hann. Kristján hafi sagt að hann þyrfti að borga honum 500 þúsund krónur, annars myndi hann brjóta á honum hnéskeljarnar og nauðga honum. Öðrum meðákærðu átti hann að borga 100 þúsund krónur og kaupa iPhone 6 handa hinum þegar sá sími kæmi út. Kristján hafi síðan sagt við félaga piltsins sem kom með honum í Vogana að hann ætti að taka piltinn í gíslingu þangað til að hann myndi borga skuldina. Þeir hafi síðan farið aftur til Reykjavíkur og sagðist pilturinn hafa náð að flýja þegar þeir stoppuðu í Skeifunni. Þá hafi hann hringt í pabba sinn og þeir farið saman til lögreglunnar og á slysadeildina. Sagði pilturinn að hann væri búinn að vera mjög hræddur síðan árásin átti sér stað og hafi glímt við mjög mikla áfallastreituröskun í kjölfarið. Aðspurður sagðist pilturinn telja að hann hefði verið í Vogum í nokkra klukkutíma en gat ekki tilgreint mjög nákvæmlega um tímasetningar. Hann sagðist þó halda að hann hefði komið um hálfeitt í Voga.Hafði tekið spítt áður en hann kom í VogaVerjendur ákærðu spurðu piltinn svo nánar út í atburðarásina. Vísaði verjandi Kristjáns til dæmis í símagögn sem hann sagði sýna að hann hefði ekki komið í Voga fyrr en rétt fyrir klukkan þrjú og að hann hefði verið kominn aftur í Hafnarfjörð klukkutíma síðar. Pilturinn sagði þá að það gæti verið að tímaskyn hans væri ekki rétt en stóð þó við það að hann hafi verið lengur en þrjá tíma í Vogum. Fram kom að pilturinn hafi tekið inn fíkniefni áður en árásin átti sér stað. Kvaðst hann hafa tekið spítt en kannaðist ekki við að hafa tekið smjörsýru áður þó að félagi hans hafi haldið því fram hjá lögreglu.„Af hverju ertu að spyrja svona asnalegra spurninga?”Verjandi Kristjáns sagði ákærða halda því fram að pilturinn hafi verið í Vogum í mesta lagi í 25-30 mínútur. Hann sagði þetta ekki rétt en verjandinn hélt því fram að símagögn styddu þetta. „Það passar ekki nema að ég sé að ímynda mér að ég hafi verið þarna í lengri tíma,” sagði pilturinn. Verjandinn þjarmaði þá að honum og ýjaði að því að hvorki gögn né læknisvottorð rynnu stoðum undir frásögn piltsins. Þá spurði hann hvort hann gæti haft frásögnina af því sem gerðist frá þriðja aðila, stúlku sem hann var með í meðferð og þekkti einn af ákærðu. „Ég var þarna, ég veit alveg hvað gerðist. Af hverju ertu spyrja svona asnalegra spurninga?” svaraði pilturinn þá.
Tengdar fréttir Sakaðir um að hafa gefið rafstuð í kynfæri í Vogunum Þrír menn hafa verið ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, frelsissviptingu og fleira. 25. mars 2015 11:07 Skeljagrandabróðir eldri þarf að víkja úr dómssal: Rafstuð í kynfæri og smjörsýra í munn Kristján Markús Sívarsson þarf að víkja úr dómssal á meðan brotaþoli á nítjánda ári gefur skýrslu vegna meintrar frelsissviptingar og tilraunar til fjárkúgunar í húsi í Vogum á Vatnsleysu. 11. maí 2015 10:48 Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Hótaði að beita skotvopni Innlent Fleiri fréttir Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ Sjá meira
Sakaðir um að hafa gefið rafstuð í kynfæri í Vogunum Þrír menn hafa verið ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, frelsissviptingu og fleira. 25. mars 2015 11:07
Skeljagrandabróðir eldri þarf að víkja úr dómssal: Rafstuð í kynfæri og smjörsýra í munn Kristján Markús Sívarsson þarf að víkja úr dómssal á meðan brotaþoli á nítjánda ári gefur skýrslu vegna meintrar frelsissviptingar og tilraunar til fjárkúgunar í húsi í Vogum á Vatnsleysu. 11. maí 2015 10:48