Íslenski boltinn

Borgunarbikarinn: Vesturbæjarslagur hjá KV og KR

Barist er um þennan.
Barist er um þennan. vísir/andri marinó
Í dag var dregið í 16-liða úrslit í Borgunarbikar karla.

Bikarmeistarar KR þurfa ekki að fara í neitt ferðalag enda lentu þeir gegn KV eða Knattspyrnufélagi Vesturbæjar. KV spilar á gervigrasi KR-inga en líklega verður leikurinn færður yfir á KR-völlinn myndi maður halda. Það kemur í ljós síðar.

Viðureign Stjörnunnar og Fylkis er eini úrvalsdeildarslagurinn.

Leikirnir fara fram dagana 16. til 18. júní.

16-liða úrslit:

Fjölnir - Víkingur Ó.

Víkingur R. - Afturelding

Þróttur R. - ÍBV

Stjarnan - Fylkir

KV - KR

Fjarðabyggð - Valur

Breiðablik - KA

FH - Grindavík






Fleiri fréttir

Sjá meira


×