Hreiðar Már í héraðsdómi: Frétti það hjá lögreglu að 12 milljarða króna lán til Kevin Stanford fór aldrei fyrir lánanefnd Kaupþings Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 4. maí 2015 18:18 Hreiðar Már Sigurðsson í héraðsdómi í dag. vísir/gva
Skýrslutöku yfir Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, lauk rétt fyrir klukkan 17 í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur. Hreiðar er ákærður í umfangsmiklu markaðsmisnotkunarmáli sem sérstakur saksóknari hefur höfðað gegn honum og átta öðrum fyrrverandi stjórnendum og starfsmönnum bankans. Hreiðar er bæði ákærður fyrir markaðsmisnotkun og umboðssvik en neitar sök í öllum liðum ákærunnar og gat ekki svarað mörgum spurningum saksóknara í dag. Á meðal þess sem hann er ákærður fyrir eru viðskipti eignarhaldsfélaganna Holt, Mata og Desulo með hlutabréf í Kaupþingi. Bankinn seldi eigin bréf til félaganna og lánaði fyrir kaupunum með veði í bréfunum sjálfum. Telur saksóknari að viðskiptin hafi byggt á blekkingum og sýndarmennsku auk þess sem fé bankans hafi verið stefnt í verulega hættu þar sem endurgreiðsla lánanna hafi ekki verið tryggð, að því er segir í ákæru.„Þetta er orðið hið versta mál” Fyrir dómi sagðist Hreiðar hvergi hafa komið nálægt viðskiptum Holt og Mata með hlutabréf í Kaupþingi. Hvað varðaði viðskipti Desulo gekkst hann því að hafa á lánanefndarfundi afgreitt eitt lán til félagsins upp á rúmar 700 milljónir króna í júní 2008. Saksóknari spilaði svo símtal sem hlerað var við rannsókn málsins vorið 2010 þar sem Bjarki Diego, framkvæmdastjóri útlána hjá Kaupþingi og einn af ákærðu í málinu ræðir kaup Desulo og lán til félagsins við Hreiðar Már: BD: „Þegar þetta kemur inn á borð hjá lánanefndinni þá er í raun búið að eiga viðskiptin.” HMS: „Já, já.” BD: „Þeir vísuðu í Egil og hann vissi bara ekki meir sagði hann.” HMS: „Nei, nei.” BD: „Og einhvers staðar koma einhver fyrirmæli sem ég veit ekki hvaðan komu.” HMS: „Nei, nei.” BD: „Þannig að þetta er orðið hið versta mál [...]” Bjarki heldur svo áfram í símtalinu að velta fyrir sér hvaðan fyrirmæli um viðskiptin hafi komið en Hreiðar segir ekkert um það annað en að þeir myndu „aldrei láta þetta út úr okkur.” Bjarki segir þá að hann geri ráð fyrir því að þegar um svo stór viðskipti sé að ræða þá geti „ekki bara einhver miðlari eða EVK-maður tekið ákvörðun um það.” Hreiðar samsinnir því og segir svo stuttu síðar: „Mér sýnist þetta vera versta málið.” Spurður út í þetta símtal fyrir dómi sagði Hreiðar: „Varðandi það að selja bréfin þá geta eigin viðskipti tekið ákvörðun um það. Það þarf enga sérstaka aðkomu háttsettari manns að því en þegar kemur að því að veita lán til kaupanna þurfti samþykki lánanefndar.” Hreiðar sagði svo að þeim hefði borist það til eyrna að Egill Árnason, eigandi Desulo, hafi ekkert vitað um viðskiptin en það hafi þó ekki verið alveg þannig. Þá kvaðst Hreiðar aldrei hafa rætt sjálfur við Egil og að hann hafi átt frumkvæði að viðskiptunum við Desulo.Kevin Stanford var stóreignamaður en skuldaði líka mikið Í seinasta lið ákærunnar eru Hreiðar og Sigurður Einarsson, fyrrum stjórnarformaður Kaupþings, ákærðir fyrir umboðssvik með því að hafa veitt breska kaupsýslumanninum Kevin Stanford peningamarkaðslán upp á 12,4 milljarða króna til að kaupa hlutabréf í bankanum. Eiga þeir að hafa gert þetta þrátt fyrir að hafa vitað um slæma fjárhagsstöðu Stanford. „Aðdragandinn er sá að Kevin Stanford óskar eftir að kaupa hlutabréf vorið 2008. Ég tjái honum að við séum tilbúnir að selja honum bréf með fjármögnun en ég gekk ekki frá neinu láni og veitti ekki neitt lán vegna þessara viðskipta,” sagði Hreiðar fyrir dómi. Hann sagði að Stanford hafi verið stóreignamaður og þrátt fyrir að hann hafi líka skuldað mikið þá hafi Hreiðar metið það sem svo að það væri gott að fá hann sem hluthafa í bankanum. Aðspurður sagðist Hreiðar svo ekki hafa tekið ákvörðun um að lána Stanford fyrir kaupunum en saksóknari varpaði þá upp endurriti úr skýrslutöku yfir Hreiðari hjá lögreglu: „Þá var það ég sem tók ákvörðun um að selja Kevin Stanford og ég tók ákvörðun um það að lánið yrði veitt og ég upplýsti Sigurð Einarsson um það.” Síðar í skýrslutökunni sagði Hreiðar: „Ég ræði við Sigurð Einarsson um þetta og hringi í Guðmund Þór [Gunnarsson, viðskiptastjóri útlána hjá Kaupþingi] eða sendi honum tölvupóst og segi, heyrðu við erum búnir að ákveða þetta. Í mínum huga er ég að biðja hann um að útbúa lánabeiðni og keyra þetta hinn hefðbundna lánaleið.”„Þetta var klúður eða mistök hjá viðskiptastjóra” Spurður út í þetta sagði Hreiðar að hann hefði komist að því við skýrslutöku hjá lögreglu að lánið til Stanford hefði aldrei farið fyrir lánanefnd. „Ég hafði ekki hugmynd um það að lánið hafði ekki farið fyrir lánanefnd og það kom mér mjög á óvart þegar ég frétti það.” Þá þvertók Hreiðar fyrir að hafa gefið fyrirmæli um að lánið yrði veitt og sagðist ekki hafa haft heimildir til að veita slíkt lán. „Enda veitti ég ekkert lán.” Spurður hvers vegna lánið fór ekki fyrir lánanefnd vísaði Hreiðar í orð Bjarka Diego úr símtali hans við Helga Sigurðsson, lögfræðing hjá Kaupþingi, sem spilað var fyrir dómi. „Það er ljóst hvert er mat Bjarka á þessu. Þetta var klúður eða mistök hjá viðskiptastjóra.”
Markaðsmisnotkun Kaupþings Tengdar fréttir Hreiðar Már í hleruðu símtali: „Er þetta markaðsmisnotkun? Ég veit það ekki, kannski“ Skýrslutaka yfir Hreiðari Má Sigurðssyni heldur áfram í Héraðsdómi Reykjavíkur. 4. maí 2015 15:00 Hreiðar bauðst til að borga fyrir bíl og bílstjóra til að keyra sig á milli fangelsisins og héraðsdóms Hreiðar Már Sigurðsson mætti í fylgd fangavarða í Héraðsdóm Reykjavíkur þar sem hann flutti langa ræðu áður en hann hóf af gefa skýrslu. 4. maí 2015 10:05 Hreiðari heitt í hamsi „Eins og ákæruvaldið haldi að ég hafi sagt satt um Al Thani og Kevin Stanford en svo ákveðið að ljúga um þetta,” sagði reiður Hreiðar Már Sigurðsson. 4. maí 2015 13:10 Hreiðar Már í héraðsdómi: „Hvers konar rugl er þetta?“ Saksóknari spurði Hreiðar Má Sigurðsson hvort að sex milljarða tap Kaupþings með viðskipti í eigin bréfum hafi verið lítill fórnarkostnaður í stóra samhenginu. 4. maí 2015 10:55 Furðar sig á aðkomu Ólafs Barkar að gæsluvarðhaldsúrskurði Hreiðar Már Sigurðsson segist halda að eitt af skjölunum í málsgögnum sé falsað. 4. maí 2015 11:17 Mest lesið Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Sjá meira
Hreiðar Már í hleruðu símtali: „Er þetta markaðsmisnotkun? Ég veit það ekki, kannski“ Skýrslutaka yfir Hreiðari Má Sigurðssyni heldur áfram í Héraðsdómi Reykjavíkur. 4. maí 2015 15:00
Hreiðar bauðst til að borga fyrir bíl og bílstjóra til að keyra sig á milli fangelsisins og héraðsdóms Hreiðar Már Sigurðsson mætti í fylgd fangavarða í Héraðsdóm Reykjavíkur þar sem hann flutti langa ræðu áður en hann hóf af gefa skýrslu. 4. maí 2015 10:05
Hreiðari heitt í hamsi „Eins og ákæruvaldið haldi að ég hafi sagt satt um Al Thani og Kevin Stanford en svo ákveðið að ljúga um þetta,” sagði reiður Hreiðar Már Sigurðsson. 4. maí 2015 13:10
Hreiðar Már í héraðsdómi: „Hvers konar rugl er þetta?“ Saksóknari spurði Hreiðar Má Sigurðsson hvort að sex milljarða tap Kaupþings með viðskipti í eigin bréfum hafi verið lítill fórnarkostnaður í stóra samhenginu. 4. maí 2015 10:55
Furðar sig á aðkomu Ólafs Barkar að gæsluvarðhaldsúrskurði Hreiðar Már Sigurðsson segist halda að eitt af skjölunum í málsgögnum sé falsað. 4. maí 2015 11:17