Rjómablíða norðanlands og má búast við svipuðu veðri á morgun Birgir Olgeirsson skrifar 16. apríl 2015 16:47 Frá Akureyri. Vísir/Pjetur
Íbúar á norður- og norðausturlandi fengu sýnishorn af sumarveðri á þessum fallega apríldegi. Á Akureyri var heiðskírt fram eftir degi og fór hiti tæplega í þrettán gráður um þrjú leytið í dag. Á fimmta tímanum kólnaði heldur og var hiti kominn í rúmar átta gráður og farið að blása úr norðri. Frá Egilsstöðum er svipaða sögu að segja en þar var heiðskírt fram eftir degi og og fór hitinn tæpar þrettán gráður og hélst þannig fram á fimmta tímann í dag. Veðrið lék ekki jafnvel við Reykvíkinga sem þurftu að sætta sig við sjö gráðu hita þegar mest var um þrjú leytið í dag og var skýjahula yfir borginni.Á morgun má búast við svipuðu veðri á landinu og var í dag. Veðurstofa Íslands gerir ráð fyrir vestlægri átt upp úr hádegi á morgun og skúrum en fer að létta til norðan- og austanlands. Heldur hægari vindur og úrkomulítið annað kvöld. Hiti 5 -10 stig að deginum en 8 -13 stig norðan- og austanlands.Á laugardag og sunnudag:Suðlæg átt, 8-13 m/s og súld með köflum, en þurrt og bjart norðan- og austanlands. Hiti 5 til 14 stig að deginum, hlýjast fyrir norðan.Á mánudag:Suðlæg átt 8-13 m/s og rigning sunna- og vestanlands, en þurrt að kalla norðaustan til. Lítið eitt svalara.Á þriðjudag:Suðvestan átt og skúrir, en slydduél norðvestan til. Yfirleitt þurrt austan til á landinu. Hiti 2 til 9 stig.Á miðvikudag:Líkur á að snúist í norðanátt með éljum fyrir norðan, en vestlægari og vætusamt syðra. Kólnandi veður.
Veður Mest lesið „Hálfur millimetri í aðra hvora áttina, þá hefði hann ekki lifað af“ Innlent Áfallið mikið en „svo er bara að bretta upp ermar“ Innlent Þúsundir hænsna drápust í bruna á eggjabúi við Voga Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent „Einkennilegt að vera með örhóp í verkfalli“ Innlent „Eins og við séum gleymd, bara einhver skóli úti á landi“ Innlent Hiti í fólki í miðbænum á kaldri sunnudagsnóttu Innlent Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn jöfn í kosningaspá Innlent Einar umfangsmestu loftárásir Rússa á orkuvinnviði Úkraínu Erlent Norsku skipagöngin á leið í útboðsferli Erlent Fleiri fréttir Vinstri græn kynna áherslumál sín fyrir kosningarnar „Eins og við séum gleymd, bara einhver skóli úti á landi“ Nýr prófastur ætlar ekki að hætta með kindurnar sínar Fimmtán prósent allra hænsna á búinu drápust Áfallið mikið en „svo er bara að bretta upp ermar“ Tryggingagjald, andstæðir pólar og orkuskipti í Sprengisandi Hiti í fólki í miðbænum á kaldri sunnudagsnóttu Þúsundir hænsna drápust í bruna á eggjabúi við Voga „Hálfur millimetri í aðra hvora áttina, þá hefði hann ekki lifað af“ „Einkennilegt að vera með örhóp í verkfalli“ Kveikt í uppstilltum bílflökum til að líkja eftir brotlentri flugvél Fólk ofmeti áhrif einstakra mála og frambjóðenda á kjósendur Ari Eldjárn lofar að hætta að segja „beisiklí“ Gengur upp og niður Garðskagavita í eitt ár Telur útfærslu kennara á verkföllum ekki líklega til árangurs Rýnt í ákvörðun Þórðar Snæs og kjaradeilu kennara Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn jöfn í kosningaspá Nokkuð öflugur skjálfti í Bárðarbungu Vélsleðaslys í Langjökli Viðbrögð við ákvörðun Þórðar: „Þetta er mikil synd“ Meirihluti telur stjórnvöld gera of lítið til að draga úr losun Lyfjapokar úr gömlum gardínum og borðdúkum á Selfossi „Þessi ákvörðun var tekin að frumkvæði Þórðar“ Staðan ólík því sem sést í Bandaríkjunum enda fylgið á fleygiferð #ÉgKýs: Kosningafundur ungs fólks „Ég hafna þessari gagnrýni algjörlega“ Þórður Snær mun ekki taka þingsæti Ráðherra hafnar gagnrýni og óvissa um tónleika á Hvalasafninu Samningur undirritaður um augnlækningar á Austurlandi Þingmaður Pírata vill í kærunefnd útlendingamála Sjá meira