Frelsissvipting í Hlíðunum: „Ég átti í útistöðum við hálfan bæinn á þessum tíma” Birgir Olgeirsson skrifar 9. apríl 2015 10:06 Ríkharð Júlíus og Davíð voru ákærðir . Vísir/GVA
Aðalmeðferð hófst í máli ríkissaksóknara gegn Ríkharð Júlíusi Ríkharðssyni, Davíð Fjeldsted (áður Davíð Freyr Rúnarsson) og félaga þeirra sem eru ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, hótanir og frelsissviptingu í desember árið 2010. Þremenningunum er gefið að sök að hafa fimmtudaginn 19. desember 2010 í bakherbergi á veitingastaðnum Monte Carlo við Laugaveg í Reykjavík veist að öðrum karlmanni á fertugsaldri og krafið hann um peninga, slegið og sparkað ítrekað í höfuð og líkama hans og svipt hann frelsi sínu í því skyni að þvinga hann til að láta fé af hendi. Í ákærunni segir að þeir hafi síðan flutt manninn í íbúð í Hlíðahverfi í Reykjavík þar sem þeir slógu hann ítrekað með hnefum, hnúajárnum, kylfu og helltu upp í hann þvottaefni. Þá hafi þeir brennt hann með sígarettu og hótað að klippa af honum fingur og eyru. Á meðan þessu stóð hafi þeir afklætt manninn og haldið honum fjötruðum og kefluðum yfir nótt í baðkeri í íbúðinni. Maðurinn var látinn laus síðdegis 20. desember eftir að faðir hans samþykkti að leggja eina milljón króna inn á bankareikning eins ákærða. Áður en hann var látinn laus hótuðu þremenningarnir honum að ef hann kærði brotin til lögreglu yrði honum og fjölskyldu gert mein. Þar á meðal að honum og systur hans yrði nauðgað.Laganemar fylgjast grannt með Ríkharð Júlíus gaf fyrstur skýrslu við upphaf aðalmeðferðarinnar en dómsalur 101 í Héraðsdómi Reykjavíkur var þéttsetinn af laganemum frá Háskóla Reykjavíkur en Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari er stundakennari þar. Ríkharð bar við minnisleysi þegar hann var spurður út í sakargiftir og sagðist hafa verið í mikilli neyslu á þessum tíma þegar brotin áttu að hafa átt sér stað. Spurður hvort hann hefði einhvern tímann komið á Monte Carlo svaraði hann: „Ég var liggur við á hverju kvöldi á þessum stað.” Spurður hvort hann kannaðist við meðákærðu sagðist hann gera það en sagðist vart vita hver brotaþoli væri. Þá sagðist Ríkharð ekki muna eftir því að hafa átt í útistöðum við brotaþola á þessum tíma. „Ég átti í útistöðum við hálfan bæinn á þessum tíma.”Segist hafa snúið við blaðinu Ríkharð sagðist ekki kannast við að hafa veist að brotaþola og kannast ekki við að hafa tekið við peningum sem voru greiddir fyrir frelsi hans. „Ekki frá honum og hef aldrei hitt föður hans.” Saksóknari spurði Ríkharð út í framburð hans við yfirheyrslu hjá lögreglu en þar hafði Ríkharð gengist við brotunum. Ríkharð sagði að honum hefði verið ráðlagt af faglærðum mönnum að játa á sig allar ásakanir við skýrslutöku hjá lögreglu og sagðist hann hafa verið tilbúinn að gera það til að losna úr afplánun. Hann segist hafa verið búinn að greina fjölskyldu sinni og vinum frá því að hann væri að losna úr afplánun og vildi gera allt til að standa við það. Þess vegna hefði hann gengist við öllu og sagði að það sjáist á því að framburður hans sé á skjön við framburði annarra aðila í þessu máli. „Ég var tilbúinn að gera hvað sem er til að losna.” Það sem á að hafa gerst þetta umrædda kvöld samkvæmt upplýsingum úr ákæru er að Ríkharð sakaði brotaþola um að hafa stolið frá sér og á að hafa krafið hann um þýfið til baka eða brotaþoli myndi greiða eina milljón króna í staðinn . Ríkharð var spurður út í hagi sína í dag og segist hafa snúið við blaðinu. Hann er að sögn edrú og býr í Danmörku ásamt fjölskyldu sinni þar sem hann stundar nám og hreyfir sig reglulega.
Tengdar fréttir Black Pistons-menn dæmdir í fangelsi Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm í Black Pistons-málinu svokallaða í morgun. Ríkharð Júlíus Ríkharðsson, forsprakki samtakanna, hlaut þyngsta dóminn en hann var dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi. Davíð Freyr Rúnarsson var dæmdur í þriggja ára fangelsi og Brynjar Logi Barkarson fékk sex mánaða dóm. Þá þurfa einnig að greiða fórnarlambinu eina og hálfa milljón í miskabætur. 27. október 2011 10:47 Formannsskipti hjá Outlaws Nýr maður fer nú fyrir vélhjólasamtökunum Outlaws á Íslandi. Hann heitir Víðir Þorgeirsson, 46 ára Reykvíkingur, kallaður Víðir tarfur. 21. september 2012 06:00 Frelsissvipting í Hlíðunum: Einn neitaði sök, annar fékk frest og þriðji mætti ekki Ríkharð Júlíus Ríkharðsson og Davíð Fjeldsted eru ásamt þriðja manni ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, hótanir og frelsissviptingu í desember 2010. 9. desember 2014 10:03 Ákærðir fyrir að afklæða mann og halda honum nauðugum í Hlíðahverfi Grunaðir um að hafa hellt upp í hann þvottaefni, kýlt hann með hnúajárnum og kylfum og brennt hann með sígarettu. 3. desember 2014 15:13 Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira
Black Pistons-menn dæmdir í fangelsi Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm í Black Pistons-málinu svokallaða í morgun. Ríkharð Júlíus Ríkharðsson, forsprakki samtakanna, hlaut þyngsta dóminn en hann var dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi. Davíð Freyr Rúnarsson var dæmdur í þriggja ára fangelsi og Brynjar Logi Barkarson fékk sex mánaða dóm. Þá þurfa einnig að greiða fórnarlambinu eina og hálfa milljón í miskabætur. 27. október 2011 10:47
Formannsskipti hjá Outlaws Nýr maður fer nú fyrir vélhjólasamtökunum Outlaws á Íslandi. Hann heitir Víðir Þorgeirsson, 46 ára Reykvíkingur, kallaður Víðir tarfur. 21. september 2012 06:00
Frelsissvipting í Hlíðunum: Einn neitaði sök, annar fékk frest og þriðji mætti ekki Ríkharð Júlíus Ríkharðsson og Davíð Fjeldsted eru ásamt þriðja manni ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, hótanir og frelsissviptingu í desember 2010. 9. desember 2014 10:03
Ákærðir fyrir að afklæða mann og halda honum nauðugum í Hlíðahverfi Grunaðir um að hafa hellt upp í hann þvottaefni, kýlt hann með hnúajárnum og kylfum og brennt hann með sígarettu. 3. desember 2014 15:13