Bakarí í Stokkhólmi hyggst bjóða upp á bolludagsbollur í formi vefja þetta árið. Ákvörðun mun eflaust gleðja ófáa viðskiptavini enda getur hið árlega bolluát reynst hin subbulegasta iðja.
„Bolluvefjurnar eru venjulegar bollur, jafn þungar og venjuleg vefja,“ segir bakarinn Mattias Ljungberg, sem starfar í Tössebageriet í viðtali við hlaðvarpsþátt Prata om mat.
Ljungberg segir að deigið sé flatt út eins og vefja en það sé jafn mikill rjómi og marsipan líkt og í venjulegri bollu, en sænskar bolludagsbollur innihalda gjarnan marsipan.
Bolludagurinn í Svíþjóð verður 17. febrúar þetta árið.
Mun selja bolludagsbollurnar sem vefjur
