Sport

Spilað á spil fyrir stóru stundina

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Undirbúningur leikmanna Íslands fer ekki allur fram á fótboltavellinum.
Undirbúningur leikmanna Íslands fer ekki allur fram á fótboltavellinum. Fréttablaðið/Valli
Liðsmenn íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu tóku í spil á milli æfinga í gær en í kvöld bíður mikilvægur leikur í Evrópukeppninni gegn Lettum í Ríga.

Ísland er í efsta sæti síns riðils eftir eina umferð og leikmenn vilja halda sér þar um helgina fyrir næsta leik sem verður á móti Hollandi á Laugardalsvelli á mánudagskvöld. Eins og kunnugt er urðu Hollendingar í þriðja sæti á heimsmeistaramótinu í Brasilíu í sumar og liðið er því geysisterkt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×