Skoðun

Framsókn hatursins

Magnús Már Guðmundsson skrifar
Afar ógeðfelld og óvægin umræða fór fram um múslima og byggingu mosku í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna í maí síðastliðnum. Upphafið má rekja til umdeildra ummæla oddvita Framsóknarflokksins. Umræðan sem fór af stað í kjölfarið var mun grófari í garð múslima en þekkst hefur. Ein af ástæðunum er vafalítið sú að opinberar persónur – frambjóðendur til borgarstjórnar og áhrifafólk – gáfu umræðunni samfélagslegt samþykki með orðum sínum og gjörðum. Það er í það minnsta niðurstaða umfangsmikillar greiningar á hatursorðræðu í ummælakerfum íslenskra netfréttamiðla sem Bjarney Friðriksdóttir, doktorsnemi í Evrópulöggjöf, vann að frumkvæði mannréttindaráðs Reykjavíkur og var nýverið kynnt. Greininguna má nálgast á vef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is.

Hótað lífláti

Sá hluti úttektarinnar sem snýr að moskumálinu byggir á um tæplega 6.000 ummælum. Þar má finna ummæli sem gætu verið skilgreind sem hatursorðræða samkvæmt almennum hegningarlögum, t.a.m. var fyrrverandi formanni Félags múslima á Íslandi hótað lífláti. Á umræðuþráðum eru ummæli sem einkennast af nýrasisma, kynþáttahyggju og þjóðernishyggju. Rauður þráður í þessum ummælum er að hættulegt sé að leyfa byggingu mosku, það muni leiða til þess að múslimum fjölgi gríðarlega mikið og að þeir muni taki að lokum yfir landið. Í mörgum tilfellum settu þátttakendur inn slóðir á myndbönd sem ætlað er að sýna fram á slæmar afleiðingar þess að leyfa múslimum að búa á Íslandi og byggingu mosku.

Samfélagslegt samþykki áhrifafólks

Upphaf þessarar ógeðfelldu umræðu má rekja til ummæla oddvita Framsóknarflokksins, en framboð flokksins mældist ekki með mann inni í skoðanakönnunum þegar þau féllu. Það breyttist skömmu eftir að umræðan hófst og skilaði að lokum tveimur sætum í borgarstjórn Reykjavíkur. Kjörnir fulltrúar Framsóknarflokksins, þar á meðal ráðherra jafnréttismála, tjáðu sig ekki um málið í langan tíma og leyfðu þannig umræðunni að grassera.

Óstjórntækur flokkur

Þögn forsætisráðherra og formanns Framsóknarflokksins var æpandi. Þegar hann loksins tjáði sig um málið var innihaldið afar rýrt. Hann hafnaði ekki málflutningi oddvitans og sagði þess í stað umræðuna hér á landi ekki nógu frjálslynda og að mjög fáir stjórnmálamenn þyrðu að ögra og vekja athygli á málum sem skipta máli.

Skömm Framsóknarflokksins er mikil. Þrátt fyrir fjölmörg tækifæri og úrsagnir úr Framsóknarflokknum hefur flokksforystan og flokkurinn ekki gert hreint fyrir sínum dyrum. Réttast væri að Framsóknarflokkurinn bæðist formlega afsökunar. Framsóknarflokkurinn er ekki stjórntækur eins og málin standa og er í rauninni ótrúlegt að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki gert athugasemdir við þetta útspil samstarfsflokksins í ríkisstjórn.

Fjölbreytt þjóðfélag

Íslenskt þjóðfélag er fjölbreytt og því ber að fagna. Að mati mannréttindaráðs Reykjavíkur er mikilvægt að uppræta hinar ýmsu staðalmyndir m.a. þjóðerna og trúarbragða, líkt og fram kemur í bókun ráðsins í tilefni af útgáfu greiningarinnar. Til þess þarf að efla fræðslu og umræðu og temja sér virðingu gagnvart samborgurum sínum. Virðingarvert væri ef Framsóknarflokkurinn gerði einmitt það og bæðist afsökunar á hlut sínum í moskumálinu.




Skoðun

Sjá meira


×