Skoðun

Takk fyrir stuðninginn

Haraldur Guðmundsson skrifar
Um miðjan desember á síðasta ári stefndi í dræma sölu á fatnaði fyrir jólin. Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ), benti þá á að fataverslun hafði dregist töluvert saman. Hann sagði mikilvægt að stjórnvöld sköpuðu hér samkeppnishæf skilyrði og næðu viðskiptunum heim. Í viðtali í fréttum RÚV nefndi hann þrjár ástæður fyrir samdrættinum; háa tolla, verslunarferðir Íslendinga til útlanda og aukna netverslun við útlönd.

Ekki voru allir verslunareigendur sáttir við þessar útskýringar. Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson, kaupmaður í Sports Direct, skrifaði grein í Fréttablaðið þar sem hann tengdi samdráttinn við þá skoðun sína að íslensk verslun sé óhagkvæm. Hún hefur að hans mati offjárfest í verslunarhúsnæði og keypt vörur inn á háu verði vegna smæðar og fjarlægðar við meginlandið. Því hafi hún ekki brugðist við breyttum tímum og náð að lækka verð.

Það er auðvitað hárrétt að fjölmargar íslenskar verslanir þurfa að nýta betur öll möguleg úrræði til að lækka vöruverð. Þeir sem eru ósammála því hafa aldrei þurft að kaupa hér barnavörur í stórum stíl eða varahluti í bíla. Dæmin eru fleiri en þetta á auðvitað ekki við um allar verslanir. Einnig er það rétt að ekki má horfa fram hjá mikilvægi hagstæðs tollaumhverfis.

En það er mikilvægt að kaupmenn velji réttu leiðirnar í baráttunni við aukna samkeppni frá netverslunum eins og AliExpress og verslunarferðum til London. Þá gengur ekki að grípa einungis til þess ráðs að biðja íslenska neytendur vinsamlegast um að „styðja íslenska verslun“ í von um að ná þannig viðskiptum með vissar vörur heim. Auglýsingar sem byggjast á því einu eru líklegri til að minna okkur á það þegar við kaupum klósettrúllur og kíló af lakkrís á uppsprengdu verði af litlum frændum og frænkum sem eru að safna fyrir skíðaferðum til Akureyrar eða jólakort af Barnaspítala Hringsins.

Sumir verslunareigendur í Kringlunni, stærstu verslunarmiðstöð Reykjavíkur, hafa límt rauða hjartalaga límmiða á glugga sína þar sem viðskiptavinum er þakkaður stuðningurinn. Erlendir ferðamenn sem eru vanir viðskiptum þar sem eigendur verslana og neytendur styðja hvorir aðra hljóta að reka upp stór augu þegar þeir sjá límmiðana og slá textann inn á Google Translate. Þeir hljóta að undra sig á því af hverju dýrmætt gluggapláss er notað í annað en að auglýsa hagstætt verð og góðar vörur.

Markaðshornið er skoðanapistill í Markaðnum, vikulegu fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagslíf. Pistillinn birtist í Markaðnum 13. ágúst 2014.




Skoðun

Sjá meira


×