Skoðun

Hvert eiga Gasabúar að flýja?

Björk Vilhelmsdóttir skrifar
Undanfarið hefur oft heyrst að Ísraelsher vari Gasabúa við áður en sprengt er og hvetji þá til að flýja. En hvert eiga þeir að flýja?

Ísrael lokar alveg svæðinu af til norðurs og austurs. Aðeins eitt hlið, Erez, er á landamærunum og í gegnum það fara engir Palestínumenn. Í vestur er sjórinn. Þar liggja ísraelsk skip sem hafa stöðugt verið með árásir á Gasaströndina. Í suður eru landamæri sem eru lokuð af Egyptalandi. Þar er eitt hlið, Rafah, og það er að öllu jöfnu lokað allri umferð. Stundum er það opið erlendum aðilum en eiginlega aldrei Palestínumönnum. Einstöku sinnum er gerð undantekning á því. Frá því núverandi árásarhrina hófst hleyptu þeir einn daginn 12 særðum í gegn, síðan hefur verið lokað.

Það er ekki að ástæðulausu að Gasa hefur verið lýst sem stærsta fangelsi í heimi og undir berum himni. Það er af sömu ástæðu sem Palestínumenn hafa grafið göng undir landamærin. Göngin voru flutningaleið fyrir brýnustu nauðsynjar og lágu hundruð þeirra hjá Rafah, en hafa verið eyðilögð af egypska hernum. Ísraelsher segir tilgang landhernaðar nú vera að uppræta þau göng inn í Ísrael sem andspyrnuhópar hafa gert norðanmegin á Gaza. Fyrir það eru íbúar nærliggjandi byggða látnir gjalda með lífi sínu. Beitt er hóprefsingu sem kostað hefur hundruð mannslífa, ekki síst barna, kvenna og aldraðra sem hafa engan stað að flýja í.

Berangur, sjúkrahús eða moska?

Það er lokað í allar áttir, en geta Gasabúar þá farið út á berangur, í moskur, skóla eða á sjúkrahús? Því miður er það ekki svarið. Berangur er óvíða, enda þéttbýlasta svæði jarðar. Síðustu daga hafa börn verið drepin sem hlupu á ströndinni og önnur sem forðuðu sér upp á þak. Sjúkrahúsið El-Wafa var sprengt og moskur eru sérstök skotmörk, þar sem uppræta á Hamas sem er jú skilgreind sem íslömsk andspyrnuhreyfing.

Viltu frið á Gasa?

Það er hægt að mótmæla blóðbaðinu með ýmsum hætti og sýna samstöðu með Palestínumönnum. Við almenningur getum beitt sniðgöngu og hætt að kaupa vörur frá Ísrael. Styrkja má neyðaraðstoð m.a. á heimasíðu Félagsins Ísland-Palestína, www.palestina.is. Reikningsnúmerið er 542-26-6990, kt. 520188-1349. Þá stendur FÍP fyrir útifundi nú á miðvikudag kl. 17 á Ingólfstorgi. Þar er krafan reist um alþjóðlega vernd fyrir íbúa Palestínu, að blóðbaðið verði stöðvað nú þegar og að Ísland slíti stjórnmálasambandi við Ísrael.




Skoðun

Sjá meira


×