Körfubolti

Fengum helling út úr þessum leikjum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Íslenska landsliðið eftir sigurleikinn gegn Lúxemborg á fimmtudaginn.
Íslenska landsliðið eftir sigurleikinn gegn Lúxemborg á fimmtudaginn. KKÍ
Ísland bar sigurorð af Lúxemborg með 80 stigum gegn 71 í æfingaleik ytra í gær. Ísland vann einnig fyrri æfingaleik liðanna á fimmtudaginn var, 78-64, en leikirnir eru liður í undirbúningnum fyrir undankeppni EM 2015.

Arnar Guðjónsson, aðstoðarþjálfari íslenska liðsins, kvaðst ánægður með leikina tvo í samtali við Vísi.

„Við fengum helling út úr þessum leikjum og það var hollt að fá þá. Það er alltaf gott að fá menn til að spila saman, en nokkrir leikmenn hafa ekki spilað alvöru leiki síðan í apríl.

„Svo voru ungir drengir sem fengu tækifæri og nýttu þau vel,“ sagði Arnar sem bætti við að íslenska liðið hefði lagt mikla áherslu á fráköstin í þessum tveimur leikjum.

„Við unnum frákastabaráttuna í báðum leikjunum nokkuð örugglega (48-25 og 44-26) sem er jákvætt. Við lögðum sömuleiðis áherslu á að vera duglegir að hreyfa boltann og við litum mjög vel út á köflum,“ sagði Arnar sem bætti við að menn væru alveg niðri á jörðinni þrátt fyrir sigrana tvo.

„Lið Lúxemborgar er ekki það sterkasta. Þarna voru í raun tvær smáþjóðir að mætast, en það var fínt að sjá við erum talsvert sterkari en þeir.

„Sigrarnir voru mun öruggari en lokastaðan en í leikjunum tveimur gaf til kynna.

„Í leiknum í gær komust við rúmlega 20 stigum yfir en gerðum örfá kjánamistök og tókum upp á því að fá tæknivillur sem er ekki vænlegt til árangurs.

„Í kjölfarið fengum við á okkur slatta af stigum, en það var gott að það gerðist í þessum leik en ekki gegn Bretlandi,“ sagði Arnar og vísaði þar til fyrsta leiks Íslands í undankeppni EM sem fer fram í Laugardalshöllinni eftir viku.

Bosnía er þriðja liðið í riðlinum, en leikið er heima og að heiman við hvora þjóð.

Íslenska liðið kemur heim í dag og Arnar segir að leikmennirnir fái frí á mánudaginn áður en æfingar hefjast að nýju.

„Það er frí á morgun og svo tekur við myndbandsvinna og leikgreining. Við höldum síðan áfram að spila okkur saman og við þurfum að koma Jóni (Arnóri Stefánssyni) og Helga (Má Magnússyni) aftur almennilega í gang,“ sagði Arnar að lokum.


Tengdar fréttir

Íslenskur sigur í Lúxemborg

Ísland vann níu stiga sigur, 71-80, á Lúxemborg í öðrum æfingaleik liðanna á síðustu þremur dögum.

Jón Arnór verður ekki með í Lúxemborg

Besti körfuknattleiksmaður landsins fékk frí vegna persónulegra ástæðna og fer því ekki með í æfingaferðina en mætir til leiks í undankeppni EM.

Logi stigahæstur í sigri á Lúxemborg

Logi Gunnarsson, skotbakvörðurinn úr Njarðvík lék sinn 100 landsleik fyrir Íslands hönd í kvöld og var hann stigahæstur leikmanna Íslands með 19 stig i fjórtán stiga sigri á Lúxemborg.

Fimm leikmenn landsliðsins að fylgja í fótspor pabba

Íslenska karlalandsliðið í körfubolta er nú statt út í Lúxemborg þar sem liðið spilar tvo æfingaleiki við heimamenn en þetta er lokaundirbúningur íslenska liðsins fyrir Evrópukeppnina. Ísland vann sannfærandi fjórtán stiga sigur í fyrsta leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×