
Kennarar reiðubúnir að ræða hækkun í þrepum

Verkfallið hefur nú staðið yfir í rúmar tvær vikur.
„Við höfum verið að fara yfir þau atriði sem enn standa útaf borðinu,“ segir Ólafur.
„Við gerum ráð fyrir því að vera hér fram á kvöld. Þetta er ekki að leysast alveg strax en við vonum að samningar náist í þessari viku.“
Ólafur segir samt sem áður að hann sjái nú samt ekki alveg í land í viðræðunum. Kennarar hafa farið fram á 17% launahækkun.
„Við erum að gera samning til lengri tíma og fórum aldrei fram á það að fá þessa launahækkun í einu lagi. Við höfum því alltaf verið tilbúin að ræða þessa hækkun í einhverjum þrepum.“
Ólafur segir að það sé eitt af þeim málum sem sé enn óleyst.
„Við höfum látið launaliðin bíða örlítið og erum nú að semja um aðra hluti eins og miklar kerfisbreytingar og annað í þeim dúr.“
Fundað verður fram á kvöld og síðan aftur í fyrramálið.
Tengdar fréttir

Hægt að vinna stór og mikil verk á skömmum tíma
"Ríkið lagði fram hugmyndir í gærkvöldi og þær erum við að skoða. “ segir Aðalheiður Steingrímsdóttir, formaður félags framhaldsskólanemenda.

Vinstri grænir fræða nemendur í verkfalli
Ungliðahreyfing Vinstri grænna heldur fyrirlestra daglega um umhverfismál, femínisma, þátttöku í stjórnmálum og fleira á meðan verkfall framhaldsskólakennara stendur yfir.

Nemendur nú þegar hættir vegna verkfalls
Dæmi eru um að nemendur hafi nú þegar hætt í námi vegna verkfallsins til að byrja að vinna. Þá segja forsetar nemendafélaganna í MH og MR óvissuna vera algjöra fyrir nemendur sem stefna á nám erlendis næsta haust.

Framhaldsskólakennarar standa saman
Verkfallsmiðstöðin þar sem framhaldsskólakennarar munu eiga samastað á meðan á verkfalli stendur opnar á morgun.

Nemendur geta búið sig undir að sitja heima næstu daga
Hvort deila framhaldsskólakennara og ríkisins sé að fara að leysast kemur ekki í ljós fyrr en í fyrsta lagi eftir tvo til þrjá daga að sögn formanns Félags stjórnar framhaldsskólakennara.

Brotið tvöfalt á fötluðum nemendum í kennaraverkfallinu
Í verkfalli framhaldsskólakennara fá fatlaðir nemendur hvorki sérstaka aðstoð við námið né þjónustu sem tengist fötlun þeirra. Nemandi sendur heim á morgnana úr skammtímavistun vegna verkfallsins. Foreldrar bjarga málum frá degi til dags.

Markmið verkfalls varla að fatlaðir lendi á hrakhólum
Ungmennahúsið á Akranesi er með opið fyrir fötluð ungmenni á daginn á meðan á verkfalli framhaldsskólakennara stendur.

Engin lausn í sjónmáli í kennaradeilu: "Við gefumst aldrei upp"
Framhaldsskólakennarar eru í baráttuhug og tilbúnir í langt verkfall ef þörf krefur. Kennarar sem rétt var við í dag segja ummæli menntamálaráðherra um styttingu náms blauta tusku í andlitið og segja hann skulda þjóðinni svör.

"Okkur líst mjög illa á tilboð ríkisins"
Framhaldsskólakennurum hugnast alls ekki tilboð ríkisins sem lagt var fram í kjaradeilu þeirra í gærkvöldi og búast ekki við að samið verði í bráð. Verkfall skall á í morgun en sálfræðingur segir mikilvægt að nemendur haldi rútínu sinni eftir fremsta megni.

Brottfall nemenda stóreykst í verkfalli
Skólastjórar framhaldsskóla hafa þungar áhyggjur af því að nemendur skili sér ekki aftur í skólann þegar verkfalli lýkur

Funda í húsi ríkissáttasemjara í dag
Verkfall framhaldsskólakennara hefur staðið yfir í fjóra daga en samninganefnd ríkisins, Félag framhaldsskólakennara og Félag stjórnenda í framhaldsskólum funda aftur í dag í húsi ríkissáttasemjara.

Margir nemendur í vandræðum
Landssamtökin Þroskahjálp hafa skorað á Félag framhaldsskólakennara að veita tafarlaust undanþágu frá verkfalli framhaldsskólakennara sem sinna kennslu fatlaðra nemenda.

„Þetta gengur óskaplega hægt“
Samningaviðræður framhaldsskólakennara ganga hægt en fundað hefur verið í húsi ríkissáttasemjara í allan dag.

Engar fjárheimildir til að mæta vanda fatlaðra ungmenna
"Dóttur minni er keyrt heim á morgnanna úr skammtímavistun þar sem hún dvelur aðra hvora viku á meðan á verkfallinu stendur,“ segir Atli Lýðsson, faðir 17 ára fatlaðrar stúlku í Reykjavík.

Guðríður Arnardóttir tekur við formennsku á morgun
Aðalfundur Félags framhaldsskólakennara verður settur klukkan 13 í dag.

"Fyrsta sinn sem ég er glöð á mánudegi“
Framhaldsskólanemendur segja frá fyrsta degi í verkfalli á samskiptamiðlinum Twitter.

Enn er óvíst hvort samið verði í bráð
Engar upplýsingar um gang kjaraviðræðna fást en verkfall hefur nú staðið yfir í tvær vikur. Kennarar fá ekki að vita hvaða tilboð hafa borist frá ríkinu en treysta því að samninganefnd sé að vinna að þeirra hag.

Með milljón á mánuði
Framhaldsskólakennarar hófu í gær verkfall þar sem ekki hafði náðst að semja um kjör þeirra. Báðir foreldrar mínir eru kennarar og hafa starfað sem slíkir í yfir þrjá áratugi. Á þeim tíma hafa þeir farið nokkrum sinnum í verkfall.

Enn setið við samningaborðið
Samningaviðræður stóðu til klukkan 21.30 í gær og fundir hófust aftur í morgun í húsi ríkissáttasemjara.

Frístundaúrræði fyrir fatlaða ekki verkfallsbrot
Foreldrar fatlaðara barna og ungmenna hafa fengið þau svör frá Reykjavíkurborg að frístundarúrræði og dvöl yfir daginn á skammtímavistun fyrir börnin myndu vera verkfallsbrot.

Skora á samninganefnd ríkisins að ganga nú þegar til samninga
Landssamtökin Þroskahjálp skora á samninganefnd ríkisins að ganga nú þegar til samninga við Félag framhaldsskólakennara.

Eru kröfur framhaldsskólakennara ósanngjarnar?
Ég er svo heppin að vinnan er eitt af áhugamálunum fyrir utan að vera óhjákvæmileg nauðsyn daglegs lífs við að brauðfæða fjölskyldu mína. Þar sem ég er að kenna tungumál hef ég ákveðið svigrúm til þess að tengja kennsluna við mjög margt sem mér þykir sjálfri skemmtilegt.

Samningafundi frestað
Fundað verður að nýju klukkan 10 í fyrramálið.

Kjaraviðræðum vísað til sáttasemjara
"Krafa okkar er sú, og við teljum að það sé sanngirnis og réttlætismál, að laun grunnskólakennara sé í samræmi við laun annarra háskólamenntara starfsmanna með sambærilega menntun og ábyrgð,“ segir formaður Félags grunnskólakennara.

Á annan milljarð til í Vinnudeilusjóði kennara
Framhaldsskólakennarar í verkfalli fá greiddar 6 þúsund krónur á dag úr Vinnudeilusjóði.

Nemendur mæta til að læra - Óvissir hvað verður
Verkfall framhaldsskólakennara hófst á miðnætti og framhaldsskólanemendur gátu því sofið út í morgun. Það voru þó ekki allir sem nýttu sér það tækifæri.

Hljóðið í kennurum mjög þungt
Samningaviðræður kennara við ríkið vegna verkfalls framhaldsskólakennara gekk ekki vel í gær.