Eystri Rangá að verða uppseld í júlí Karl Lúðvíksson skrifar 20. mars 2014 13:55 Fyrstu laxarnir í Eystri Rangá hafa verið stórlaxar
Síðasta sumar var mjög gott í Eystri Rangá og er svo komið að sárafáar stangir eru eftir í júlí. Veiðin í fyrra var mjög góð en það komu 4.800 laxar á land úr ánni þrátt fyrir rysjótt tíðarfar og oft á tíðum erfiðar aðstæður við ána. Það sem þykir athyglisvert við veiðina í fyrra er góð veiði snemmsumars en það komu hátt í annað hundrað laxar á land í lok júlí og veiðin fyrstu vikuna í júlí var að sama skapi mjög góð. Mest af þessum laxi sem veiðist í byrjun tímabils er stórlax svo það er ekkert skrítið að veiðimenn sem hafa gert það gott á þessum tíma skuli sækja í Eystri aftur. Sleppingar í fyrra gengu mjög vel og er reiknað með að sumarið núna verði síst lakara en í fyrra en frekar er reiknað með því að veiðin verði betri. Það sem hefur gert gæfumuninn í ánni er að sérstaklega hefur verið gert út á að ná fyrstu löxunum sem ganga í klak til að byggja upp stofn sem er snemmgenginn. Þetta er gífurlega tímafrekt og mikil vinna er á bak við sleppingarnar til að tryggja að þær skili sem bestum árangri en ljóst þykir að vinna síðustu ára er klárlega að skila sér. Það sést bæði á veiðitölum og stærð þeirra laxa sem eru að veiðast.
Stangveiði Mest lesið Veiðivötn komin í 18.415 fiska Veiði Víðidalsá - Uppgjör 2011 Veiði Fimmta framboðið til stjórnar SVFR Veiði Kröfluflugurnar sterkar í sjóbirtinginn Veiði Tungufljót að taka við sér Veiði Aðalfundur SVFR og kosning til stjórnar Veiði Eystri Rangá komin yfir 3.000 laxa Veiði Með 47 rjúpur um opnunarhelgina Veiði Hraunsfjörður fer að vakna Veiði Laxá í Ásum fór á 28 milljónir Veiði