Örugglega enginn af þessum bestu hreinn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. nóvember 2013 00:01 Kolbeinn Höður Gunnarsson. Myndir/Gunnlaugur Júlíusson „
Þetta er allt þess virði þegar maður uppsker,“ sagði spretthlauparinn Kolbeinn Höður Gunnarsson á stefnumóti við blaðamann á Akureyri á dögunum. Kolbeinn, sem æfir af kappi með Ungmennafélagi Akureyrar, var nýkominn af erfiðri æfingu hjá liði sínu og viðurkenndi að undirbúningstímabilið væri enginn dans á rósum. „Æfingarnar geta verið alveg rosalega erfiðar og stundum er þetta leiðinlegt,“ segir Kolbeinn sem vakti mikla athygli fyrir framgöngu sína á frjálsíþróttavellinum á síðasta keppnistímabili. Akureyringurinn átján ára setti Íslandsmet í karlaflokki í 400 metra hlaupi innanhúss í janúar og sankaði að sér verðlaunum fram á haust. „Þetta var í raun fyrsta keppnistímabilið mitt þar sem ég tók fullt undirbúningstímabil sem hlaupari,“ segir Kolbeinn um stöðu mála. Hann byrjaði ekki að æfa frjálsar íþróttir fyrr en á þrettánda ári en hafði áður prófað fótbolta og íshokkí. „Ég mætti bara á eina fótboltaæfingu. Mér finnst alveg gaman í fótbolta en kunni ekki við að æfa,“ segir Kolbeinn sem entist öllu lengur í íshokkíinu. Hann telur það hafa gefið sér góðan grunn fyrir hlaupin en ekki er svo að mikil hlaupagen sé að finna í fjölskyldunni. Óhætt er að segja að svar hans við spurningunni hvers vegna hann sé svona fljótur komi blaðamanni í opna skjöldu. Þannig er að hann bjó með foreldrum sínum í Namibíu í Afríku þegar hann var á leikskólaaldri. „Ég var alltaf berfættur í Namibíu,“ segir Kolbeinn. „Jörðin var alltaf svo heit að ég hljóp alltaf um á tánum. Ekki ósvipað og ég geri í spretthlaupunum.“Mynd/Gunnlaugur JúlíussonÍslandsmet Jóns Arnars „léleg“ Kolbeinn æfir undir leiðsögn Gísla Sigurðssonar hjá UFA sem hann kann vel að meta. „Hann er heimsklassa þjálfari. Ég hef svo sem ekki mikinn samanburð en þú sérð bara hvað hann gerði fyrir Jón Arnar Magnússon,“ segir Kolbeinn. Gísli þjálfaði tugþrautarkappann um árabil með góðum árangri. Þannig er mál með vexti að þrátt fyrir að hafa einbeitt sér að tíu greinum á Jón Arnar Íslandsmetin í 100 og 200 metra hlaupi utanhúss. Reyndar á Jón Arnar einnig metin í 110 metra grind og langstökki en spretthlauparinn Kolbeinn horfir hýru auga til fyrrnefndu greinanna. „Íslandsmetin í 100 og 200 metrunum eru léleg,“ segir Kolbeinn og er fljótur að útskýra mál sitt. Meiningin sé alls ekki að móðga einn fremsta íþróttamann sem þjóðin hafi alið. Í samhengi við mörg önnur Íslandsmet séu tímarnir ekki sérstakir enda metin sett af íþróttagarpi sem einbeitti sér að tíu íþróttagreinum á sama tíma. Kolbeinn sparar ekki stóru orðin enda fullur af sjálfstrausti eftir vel heppnað tímabil. „Markmiðið á næsta ári eru Íslandsmetin í 100 og 200 metra hlaupum,“ segir Kolbeinn. Hann á best 10,84 sekúndur í 100 metrum og 21,38 sekúndur í 200 metrum. Íslandsmet Jóns Arnars í greinunum eru 10,56 sekúndur og 21,17 sekúndur.Tölvuleikjastrákur Kolbeinn Höður spilar tölvuleiki og sumir þeirra eru í ofbeldisfyllri kantinum. „Já, flestir, en ég spila líka aðra leiki. Íþróttaleikir eru samt þeir langleiðinlegustu,“ segir Kolbeinn léttur.Mynd/Gunlaugur JúlíussonMynd/Gunnlaugur JúlíussonSkammt stórra högga á milli Kolbeinn er meðvitaður um að ýmislegt geti komið upp hjá íþróttafólki. Hann hefur sloppið við meiðsli hingað til en veit að hættan er alltaf fyrir hendi. „Ég er líka viðbúinn því að það komi ár þar sem maður bætir sig ekki neitt,“ segir Kolbeinn sem er á þriðja ári á félagsfræðibraut við Menntaskólann á Akureyri. Eins og svo margir norðanmenn elskar hann lífið í höfuðborg Norðurlands og á erfitt með að ímynda sér líf annars staðar. „Hérna er líka fjölskyldan og vinirnir,“ segir Kolbeinn alls óviss hvort hann vilji nýta sér íþróttahæfileikana til að nema í Bandaríkjunum eða halda annað. Það verði bara að koma í ljós.Mynd/Gunnlaugur JúlíussonÖrugglega enginn af þessum bestu hreinn Kolbeinn kemur til dyranna eins og hann er klæddur. Um leið og umræðan snýr að notkun ólöglegra efna hjá íþróttafólki í heimi frjálsra íþrótta er skoðun hans skýr. „Ég er á móti öllum vímuefnum,“ segir Kolbeinn sem eðli málsins samkvæmt snertir hvorki tóbak né áfengi. Hann leggur áherslu á heilbrigðan lífstíl, borðar lítið af unni matvöru, drekkur að mestu leyti vatn og sefur mikið. Það hefur gengið vel og hann hefur engar áhyggjur af því að falla í gryfju árangursaukandi lyfja eins og svo margir. „Það er örugglega enginn af þessum bestu hreinn,“ segir Kolbeinn um þá fremstu í sínu sviði í 100 metra hlaupum. Kapparnir keppast við að falla á lyfjaprófum og virðast flestir af hröðustu tímum sögunnar hafa verið náð með óhreint mjöl í pokahorninu. Usain Bolt er enn ósnertur en Jamaíkamaðurinn hefur verið í sérflokki í greininni undanfarin ár. „Ef það er einhver hreinn þá er það hann,“ segir Kolbeinn. Bendir hann á að þegar Bolt var á fermingaraldri hafi hann verið að hlaupa á pari við fljótustu hlaupara Evrópu. Bolt er þó ekki hetjan heldur Bandaríkjamaðurinn Michael Johnson sem var þó hættur keppni þegar Kolbeinn fór á fullt í frjálsum. „Ég hef horft á fjölmörg myndbönd af honum á youtube,“ segir Kolbeinn um Johnson sem meðal annars varð Ólympíumeistari í 200 og 400 metra hlaupi á Ólympíuleikunum í Atlanta árið 1996. Kolbeinn ætlar sér stóra hluti á næstum árum. Hann gerir mikið af því að skoða árangur efnilegra hlaupara erlendis, hvar þeir stóðu við átján ára aldurinn og hve mikið þeim tókst að bæta sig á einu ári. „Ég er svo mikill pælari. Auðvitað eru þetta bara pælingar og draumar en það að aðrir hafi bætt sig svo mikið sýnir að þetta er vel hægt,“ segir hlauparinn sem horfir björtum augum fram á veginn.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fleiri fréttir „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Guðmundsdætur verða áfram í KR Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Arnar kynnti landsliðshópinn Geta unnið tíunda leikinn í röð í undankeppni EM „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu Bjóða upp á barna FanZone fyrir leikinn í Höllinni í kvöld Jake Paul lofar að hætta í hnefaleikum ef hann tapar fyrir Doumbe FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Dagskráin í dag: Meistaradeildarveisla í allt kvöld Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 93-97 | Grindavík á toppnum með fullt hús stiga Sigurganga Hauka heldur áfram Sjá meira