Klár í slaginn gegn Fylki Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. júní 2013 07:30 David James í marki ÍBV gegn FH. Fréttablaðið/Daníel
Búist er við því að David James verji mark ÍBV sem tekur á móti Fylki í 6. umferð Pepsi-deildar karla á morgun. Leiknum var flýtt vegna landsliðsverkefna Tonny Mawejje með Úganda en aðrir leikir í 6. umferð fara fram 9. og 10. júní. James missti af síðustu tveimur leikjum ÍBV, gegn Víkingi Ólafsvík og Þrótti, en töluverð óvissa hefur ríkt um það hvers vegna James var fjarverandi í leikjunum. „Hann var að klára A-þjálfaranámskeið sitt hjá UEFA,“ segir Óskar Örn Ólafsson, formaður knattspyrnudeildar ÍBV. Óskar staðfesti að James hefði komið til landsins í gær og reiknaði með því að hann væri klár í slaginn gegn Fylki. „Það var einhver vökvi inni á hnénu hjá honum sem var tekinn á meðan hann var ytra,“ sagði Óskar. Eyjamenn séu þó vanir því að vera með hörkutól í markinu og minnir á Albert Sævarsson. „Albert fór eitt sinn í speglun en spilaði strax daginn eftir,“ segir Óskar en minnir á að Albert sé læknisfræðilegt undur. Hann hafi einnig fengið gat á lunga en verið mættur í markið skömmu síðar. Óskar Örn segir hins vegar að koma verði í ljós hvort James takist að slá út Guðjón Orra Sigurjónsson í marki ÍBV. Guðjón Orri fékk aðeins á sig eitt mark í leikjunum tveimur sem hann leysti James af í.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Fimmtíu fótboltastjörnur og Formúlu-ökuþór nýttu sér vændishring Fótbolti Sjáðu Orra fá hundrað þúsund manns til að öskursyngja Fótbolti „Bað hann um að segja mér ekki að fokka mér“ Körfubolti Rosenior rekinn frá Chelsea Enski boltinn Valur keypti Samúel Kára fyrir mikið fé Íslenski boltinn Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Enski boltinn Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Enski boltinn Stórslasaður eftir að hafa verið blindfullur á hjóli Sport Skall með höfuðið í gólfið og fékk heilahristing Körfubolti Baldvin á samningi hjá Nike: „Hélt ég myndi aldrei ná svona langt“ Sport Fleiri fréttir ÍA - KA | Innipúkar í höllinni þurfa sigur Keflavík - Breiðablik | Fyrsti grasleikurinn Markaskorari sem svífur framhjá leikmönnum HK, Grótta, Fylkir og Þróttur á leið í Bestu deildirnar? Valur keypti Samúel Kára fyrir mikið fé Besta-spá kvenna 2026: Baráttan á botninum Valsmenn opna veskið til að landa Samúel Kára Valsmönnum fjölgar í Mosfellsbæ Breiðabliki spáð titli en Val neðri helmingi Sjálfstæðisflokkur langstærstur í Bestu deild kvenna Svona var fundurinn fyrir Bestu deild kvenna KR-ingar komast ekki til Eyja: „Þetta er leiðindamál“ Spilað inni á Akranesi á miðvikudaginn Unglingalandsliðsfyrirliði frá Blikum í Val „Strákur sem Vesturbærinn hefur beðið lengi eftir“ Stúkan: Skagamenn voru rændir af dómaranum Sjáðu öll mörkin: Veisla í Vesturbænum, tvenna hjá Vuk og Gylfi í skotskónum Hunsaður frá byrjun: „Þetta var bara frekar leiðinlegt og fúlt“ Uppgjörið: Stjarnan - FH 3-2 | Andri Rúnar reyndist Stjörnunni gulls ígildi „Erum á réttri leið“ KR - Þór Ak. 5-2 | Veisla í Vesturbæ Ekki mörg lið í Skandinavíu ráði við KR í þessum gír „Verðum að laga þetta ef við ætlum að láta taka okkur alvarlega“ Uppgjörið: Breiðablik-ÍA 1-0 | Blikar stóðust stórsókn Skagamanna Uppgjörið: Fram-Keflavík 3-1: Vuk Oskar kom, sá og sigraði í sigri Framara Uppgjör: KA-Víkingur 0-2 | Gylfi áfram á skotskónum og Víkingar unnu fyrir norðan „Klárlega léttir þetta pressu“ Uppgjör: Valur-ÍBV 2-1 | Hólmar tryggði Val fyrsta sigur sumarsins Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda Sjá meira