Körfubolti

Að seljast upp á Globetrotters

Eins og flestir vita eru körfuboltasnillingarnir í Harlem Globetrotters væntanlegir til landsins og ætla að standa fyrir fjölskylduskemmtun í Kaplakrika þann 5. maí næstkomandi. Þetta verður þeirra fjórða heimsókn til landsins, en sú fyrsta frá árinu 2002. Sala á skemmtunina hófst laust fyrir áramót og eru nú á þriðja þúsund miða seldir, en Kaplakriki tekur aðeins 2.800 manns í sæti. Það stefnir því allt í að uppselt verði á skemmtunina von bráðar en svokallaðir VIP-miðar eru nú þegar allir farnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×