Svar til Stígamóta Ögmundur Jónasson skrifar 15. janúar 2013 06:00 Í Fréttablaðinu 9. janúar sl. birtist opið bréf Stígamóta til mín sem innanríkisráðherra þar sem skorað er á mig að taka til hendinni í kynferðisbrotamálum. Voru þar nefnd nokkur atriði sem Stígamót hafa sett á oddinn á síðustu árum. Þakka ég þessar ábendingar en vil einnig nota tækifærið til að víkja að nokkrum atriðum í baráttunni gegn kynferðisofbeldi sem ég hef komið að á þeim ríflega tveimur árum sem liðin eru frá því að ég tók við embætti dómsmála- og mannréttindaráðherra, síðar innanríkisráðherra.Stofnanabreyting ekki töfralausn Strax í nóvember árið 2010 efndi ráðuneytið til viðamikils samráðs um meðferð nauðgunarmála í réttarvörslukerfinu þar sem kallaðir voru til fulltrúar réttarvörslukerfisins, stofnana, grasrótarsamtaka og fræðafólks á sviðinu til að ræða þá staðreynd að aðeins brotabrot af þeim nauðgunarmálum sem upp koma rata í gegnum réttarkerfið og enda með sakfellingu. Samráðið var afar gagnlegt og var unnið úr niðurstöðum þess. Meðal þess sem þar kom fram var að auka þyrfti fræðslu um málaflokkinn og efna til fræðilegra rannsókna á meðferð nauðgunarmála. Þá kom einnig fram sú tillaga Stígamóta að setja á laggirnar sérstakan saksóknara og sérstakan dómstól í kynferðisbrotamálum og hlaut sú tillaga nokkra umræðu, bæði í sjálfu samráðsferlinu og innan ráðuneytisins. Eftir nokkrar vangaveltur var niðurstaða mín sú að hlýða á ábendingar þeirra sem töldu vænlegra að styðja við það kerfi sem nú er til staðar en að búa til ný embætti í þessum málaflokki. Í því samhengi er rétt að taka fram að kynferðisbrot mynda stóran hluta af þeim málum sem Ríkissaksóknaraembættið fæst við og myndi þessi stofnanabreyting sennilega hafa í för með sér að hluti starfsfólks Ríkissaksóknara færi yfir í hina nýju stofnun. Taldi ég kröftunum að svo stöddu betur varið í að reyna að varpa ljósi á hvaða leiðir eru færar til að styrkja núverandi embætti til að takast á við brotaflokkinn og að stofnanabreyting ein og sér myndi ekki reynast töfralausn í þeim efnum.Afstaða hefur áhrif Í kjölfar samráðsins hefur ráðuneytið, í samvinnu við lagadeild Háskóla Íslands, staðið fyrir fræðslu og umfjöllun um kynferðisbrot, þ.m.t. með alþjóðlegri ráðstefnu sem fram fór í janúar í fyrra. Einn af lykilfyrirlesurum ráðstefnunnar var Liz Kelly, prófessor frá Englandi, en hún hefur m.a. rannsakað upplifun brotaþola kynferðisofbeldis af að leita réttar síns. Meðal þess sem fram kom í hennar fyrirlestri, sem er aðgengilegur á vefsíðu innanríkisráðuneytisins, var að upplifun brotaþola af réttarkerfinu er ekki endilega háð því hvort brotamaður er sýknaður eða sakfelldur, eða mál fellt niður. Réttarkerfi sem tekur ekki vel á móti brotaþolum getur þannig verið eins konar áframhald af ofbeldinu. Réttarkerfi sem tekur á móti brotaþola af virðingu hefur hins vegar önnur áhrif. Þetta tel ég vera eitt af meginverkefnum réttarkerfisins og ráðuneytisins, að stuðla að því að kerfið sé ævinlega styðjandi gagnvart þeim sem til þess leita. Til að skilja hvers vegna svo fá nauðgunarmál eru kærð og hvers vegna svo fá mál sem eru kærð rata gegnum réttarkerfið er nauðsynlegt að reyna að varpa ljósi á heildarmyndina. Hvað einkennir þau mál sem rata í gegnum kerfið og hvað einkennir þau mál sem eru felld niður? Hver eru viðhorf þolenda nauðgana annars vegar og hins vegar þeirra sem starfa við rannsókn, saksókn, vörn og dóm til málaflokksins? Hvaða hugmyndir hafa þau um úrbætur? Þetta er meðal spurninga sem lagt var upp með þegar ráðuneytið efndi til samstarfs við EDDU – öndvegissetur um fræðilega rannsókn á meðferð nauðgunarmála. Stendur sú rannsókn yfir og tel ég að á niðurstöðum hennar megi byggja frekari tillögur um framtíðarsýn í málaflokknum.Áhrif kláms á kynferðisbrot Fleira má tína til: Í framhaldi af samráðinu efndu þrjú ráðuneyti, ásamt lagadeild HÍ, til umræðu og ráðstefnu um klám og þau áhrif sem klám hefur á kynferðisbrot, m.a. vegna þess ofbeldis gegn konum sem er ráðandi í klámefni og vegna þess að börn sjá klámefni mjög ung. Niðurstöður þess liggja nú fyrir og mun ég m.a. beita mér fyrir breyttri skilgreiningu á klámhugtakinu í hegningarlögum og athugunum á frekari úrræðum til handa lögreglu vegna brota á banni gegn klámi. Fræðsla um klám er einnig hluti af vitundarvakningu um ofbeldi gegn börnum sem innanríkisráðuneytið hefur haft forystu um, í samstarfi við menntamálaráðuneyti og velferðarráðuneyti. Vakningin stendur til þriggja ára og vonandi lengur, en með henni er fræðslu m.a. beint að börnum og að fólki sem starfar með börnum. Hvað vændi og mansal varðar þá er það rétt sem fram kemur í bréfi Stígamóta að lögreglan hefur ekki reynst nægilega vel búin til að takast á við þennan vanda, en það kemur sífellt betur í ljós hve umfang hans er mikið. Alþingi samþykkti árið 2009 að banna kaup á vændi og heimildir lögreglu til að takast á við brotaflokkinn hafa verið skýrðar. Á síðasta ári samþykkti Alþingi jafnframt áframhaldandi fjárveitingu til átaks lögreglu gegn skipulagðri glæpastarfsemi og var þá kveðið sérstaklega á um að rannsóknir ættu að ná til vændis og mansals. Þarna er því stigið skref í átt að því að kortleggja vændi og mansal á Íslandi og efla viðbúnað lögreglu til að takast á við það.Betur má ef duga skal Í starfi mínu sem innanríkisráðherra hef ég viljað viðurkenna þann vanda sem kynferðisofbeldi er í íslensku samfélagi og gera allt sem í mínu valdi stendur til að taka þátt í að uppræta slíkt ofbeldi. Ráðuneytið hefur haft forgöngu um þau verkefni sem hér hafa verið nefnd en einnig tekið þátt í alþjóðlegu samstarfi til að læra af reynslu annarra og eiga í samtali um bestu mögulegu leiðir í þessari baráttu. Ég vil því leyfa mér að halda því fram að í innanríkisráðuneytinu hafi verið tekið til hendinni í málaflokknum. En hitt er rétt að betur má ef duga skal og kallar þetta viðfangsefni á samhent átak; stjórnmála, stofnana, fræðafólks, grasrótarsamtaka og samfélagsins í heild. Ég skorast ekki undan því að leggja mín lóð á vogarskálarnar og tek hvatningu Stígamótakvenna fagnandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ögmundur Jónasson Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Skoðun Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar