Körfubolti

Nýr sjónvarpsþáttur um íslenskan körfubolta

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Liðin tólf í Domino's-deild karla í körfubolta verða sótt heim í nýjum sjónvarpsþætti á Stöð 2 Sport.

Sverrir Bergmann stýrir þættinum sem hefur göngu sína fljótlega. Fyrsta umferðin í Domino's-deild karla hefst á fimmtudaginn. Íslandsmeistarar Grindavíkur taka á móti KR í Röstinni og þá sækir Keflavík heim Stjörnuna í Garðabæ.

Sverrir kynnti þáttinn til leiks í kvöldfréttum Stöðvar 2 og gaf áhorfendum innsýn um hvers lags þátt um ræðir. Innslagið má sjá hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×