Bandaríski tónlistarmaðurinn Jillionaire úr hinni vinsælu danshljómsveit Major Lazer var í viðtali við Rolling Stone tímaritið og ræddi þar m.a. um dauðsföll sem urðu á Electric Zoo tónlistarhátíðinni þar sem að tvö ungmenni létu lífið eftir neyslu á MDMA.
„Þetta mun eflaust hljóma undarlega en við verðum að kenna krökkum hvernig á að neyta eiturlyfja á sama hátt og við kennum þeim að drekka áfengi með ábyrgum hætti og að stunda öruggt kynlíf. Ef þú ert að fara á hátíð, drekktu vatn í sex daga áður en þú mætir á svæðið, ekki drekka neitt áfengi. Ef þú ætlar að gleypa eina og hálfa pillu, ekki taka fjórar í viðbót, falla í yfirlið, ofhitna og deyja úr hjartastoppi. Í staðinn fyrir að láta eins og eiturlyf séu ekki til þurfum við að viðurkenna að þau séu á þessum hátíðum og við þurfum að takast á við það.“
Neysla á MDMA, oft nefnt Molly, hefur verið mikið í umræðunni hérlendis að undanförnu og hafa margir kvartað undan ábyrgðarlausri umfjöllun fjölmiðla um málið. Það má því spyrja sig hvert sé hlutverk fjölmiðla í slíkum málum? Eiga þeir að gegna hlutverki einhverskonar siðferðispostula og hlífa sauðsvörtum almúganum fyrir öllum þeim viðbjóði sem þrífst í samfélaginu? Eða er hlutverk fjölmiðla frekar að reyna að spegla samfélagið á hlutlausan hátt og fjalla um það sem er að gerast hverju sinni?
Að lokum má vitna í Diplo, sem einnig er í sveitinni Major Lazer, en hann sagði við Rolling Stone: „Við erum í svo íhaldssamri menningu að við viljum frekar sleppa því að ræða hluti sem kakkar vilja gera, þrátt fyrir að þau gera þessa hluti hvort sem er. Við hunsum vandamálið í þeirri von að það hverfi.“
Diplo hélt svo áfram: „Þetta mun gerast, þú getur ekki stjórnað því. Að fordæma þessar hátíðir mun engu breyta því krakkarnir munu ennþá vilja fara á þær.“

