Körfubolti

KR-ingar óstöðvandi

Martin Hermannsson var atkvæðamikill í dag.
Martin Hermannsson var atkvæðamikill í dag. mynd/Valli
KR-ingar eru taplausir eftir þrjá leiki í Fyrirtækjabikar karla í körfuknattleik. KR vann Breiðablik 89-80 og kom sér á topp D-riðils ásamt Snæfelli.

Martin Hermannsson voru atkvæðamestur fyrir KR í leiknum en Martin skoraði 30 stig og var duglegur að mata samherja sína með stoðsendingum.

Svavar Vignisson fór fyrir sínum mönnum í Breiðabliki en bein textalýsing á kki.is hrundi rétt fyrir lok leiksins og var Svavar þá búinn að skora 29 stig og taka 10 fráköst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×