Körfubolti

Gagnrýnir harðlega afreksstefnu KKÍ

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Jón Arnar Ingvarsson.
Jón Arnar Ingvarsson. Mynd/Anton
„Ætlar einhver í húsinu að segja mér að okkur sé alvara með að byggja upp betra landslið?"

Þetta ritar Jón Arnar Ingvarsson, körfuboltaþjálfari og fyrrum leikmaður, í pistli á vefsíðunni Karfan.is í dag. Jón Arnar segir í pistli sínum ljóst að Ísland þurfi fleiri leikmenn í stærri deildum úti í heimi.

„Sænska deildin er ágæt og sterkari en sú íslenska en hins vegar eru trúlega 30 deildir í Evrópu betri en sú sænska. Og við þurfum klárlega fleiri leikmenn sem eru að klifra þann stiga. Ég er náttúrulega ekki að gera lítið úr okkar leikmönnum í Svíþjóð sem eru flottir og góðir leikmenn," ritar Jón Arnar.

Jón Arnar, sem síðast þjálfaði karlalið ÍR í vetur, telur gott skref að fækka erlendum leikmönnum. Næsta skref sé að lengja tímabilið og fjölga leikjum. Hann hefur hins vegar áhyggjur af afreksstefnu Körfuknattleikssambands Íslands.

„Ég held að flest félögin séu að vinna ágætt starf, en hins vegar höfum við ekki haldið úti nægjanlega góðu afreksprógrami fyrir yngri landsliðin. Og því miður langt frá því. Það er algjörlega óviðunandi og mér með öllu óskiljanleg stefna," segir Jón Arnar.

Leikstjórnandinn fyrrverandi bendir á að yngri landslið séu aðeins send á Norðurlandamót en ekki sterkari mót eins og aðrar þjóðir. Norðurlandamótið er upphitunarmót að sögn Jóns Arnars.

„Það er eins og Njarðvík mundi ákveða að senda sín lið bara í Reykjanesmótið!"

Jón Arnar bendir á að 44 þjóðir í Evrópu sendi lið í Evrópukeppni yfir sumarið. Ísland sé ein þriggja þjóða sem sendi ekki lið til þátttöku. Þar verði efnilegir leikmenn af góðri reynslu og topp leikjum.

„Ætlar einhver í húsinu að segja mér að okkur sé alvara með að byggja upp betra landslið? Það getur vel verið að hægt sé að byggja upp gott úrvalsdeildarlið tímabundið með ekkert yngri flokka starf, ef allir leikmenn eru aðkeyptir og útlendingakvótinn er ótakmarkaður. En það getur enginn sagt mér að gott A-landslið verði til úr veikum grunni. Það er bara ekki hægt."

Pistilinn í heild sinni má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×