Hann fer í þessa tæklingu eins og fljúgandi skítakamar Stefán Árni Pálsson skrifar 18. júní 2013 20:44 „
Þetta voru mjög sanngjörn úrslit,“ sagði Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV, eftir leikinn í kvöld. ‚ÍBV gerði, 1-1, jafntefli við Val á Vodafone-vellinum í lokaleik sjöundu umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu. „Við vorum hættulegri aðilinn í fyrri hálfleiknum og áttum betri færi. Liðið náði að nýta þetta eina færi gríðarlega vel.“ „Gott lið eins og Valur fær alltaf að eiga sína góðu kafla í hverjum leik og það gerðist í kvöld. Það var virkilega svekkjandi hvað við duttum aftarlega í síðari hálfleiknum og Valur uppsker mark eftir það.“ „1-0 er stórhættuleg staða og við ætluðum alls ekki að falla til baka, heldur halda okkur við sama leikskipulag en það gekk ekki upp og því var jafntefli sanngjörn úrslit.“ Hermann Hreiðarsson ærðist út í Hauk Pál, leikmann Vals, eftir eina tæklingu í síðari hálfleiknum og lét hann heldur betur heyra það. Þjálfarinn var stálheppinn að fá ekki gult spjald fyrir vikið en hann ætlaði fyrst að þruma boltanum upp í loftið, en til allra hamingju, fyrir hann, þá hitti Hermann ekki boltann. „Hann kemur hérna eins og fljúgandi skítakamar, allt of seinn í tæklinguna og átti ekki möguleika í boltann. Ég er svosem ekki að biðja um nein spjöld þegar ég bregst svona við en mér fannst þetta bara nokkuð léleg tækling hjá honum. Hann þarf bara að læra svona hluti og ég get alveg tekið hann í smá kennslu í þessu.“ Hægt er að sjá myndbandið af viðtalinu við Hermann hér að ofan.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Fimmtíu fótboltastjörnur og Formúlu-ökuþór nýttu sér vændishring Fótbolti Sjáðu Orra fá hundrað þúsund manns til að öskursyngja Fótbolti Rosenior rekinn frá Chelsea Enski boltinn „Bað hann um að segja mér ekki að fokka mér“ Körfubolti Valur keypti Samúel Kára fyrir mikið fé Íslenski boltinn Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Enski boltinn Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Enski boltinn Stórslasaður eftir að hafa verið blindfullur á hjóli Sport Skall með höfuðið í gólfið og fékk heilahristing Körfubolti Baldvin á samningi hjá Nike: „Hélt ég myndi aldrei ná svona langt“ Sport Fleiri fréttir ÍA - KA | Innipúkar í höllinni þurfa sigur Keflavík - Breiðablik | Fyrsti grasleikurinn Markaskorari sem svífur framhjá leikmönnum HK, Grótta, Fylkir og Þróttur á leið í Bestu deildirnar? Valur keypti Samúel Kára fyrir mikið fé Besta-spá kvenna 2026: Baráttan á botninum Valsmenn opna veskið til að landa Samúel Kára Valsmönnum fjölgar í Mosfellsbæ Breiðabliki spáð titli en Val neðri helmingi Sjálfstæðisflokkur langstærstur í Bestu deild kvenna Svona var fundurinn fyrir Bestu deild kvenna KR-ingar komast ekki til Eyja: „Þetta er leiðindamál“ Spilað inni á Akranesi á miðvikudaginn Unglingalandsliðsfyrirliði frá Blikum í Val „Strákur sem Vesturbærinn hefur beðið lengi eftir“ Stúkan: Skagamenn voru rændir af dómaranum Sjáðu öll mörkin: Veisla í Vesturbænum, tvenna hjá Vuk og Gylfi í skotskónum Hunsaður frá byrjun: „Þetta var bara frekar leiðinlegt og fúlt“ Uppgjörið: Stjarnan - FH 3-2 | Andri Rúnar reyndist Stjörnunni gulls ígildi „Erum á réttri leið“ KR - Þór Ak. 5-2 | Veisla í Vesturbæ Ekki mörg lið í Skandinavíu ráði við KR í þessum gír „Verðum að laga þetta ef við ætlum að láta taka okkur alvarlega“ Uppgjörið: Breiðablik-ÍA 1-0 | Blikar stóðust stórsókn Skagamanna Uppgjörið: Fram-Keflavík 3-1: Vuk Oskar kom, sá og sigraði í sigri Framara Uppgjör: KA-Víkingur 0-2 | Gylfi áfram á skotskónum og Víkingar unnu fyrir norðan „Klárlega léttir þetta pressu“ Uppgjör: Valur-ÍBV 2-1 | Hólmar tryggði Val fyrsta sigur sumarsins Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda Sjá meira