Körfubolti

Valur í Dominos-deildina

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ágúst Björgvinsson, þjálfari Vals, (til vinstri) leiddi Valsmenn upp í úrvalsdeildina.
Ágúst Björgvinsson, þjálfari Vals, (til vinstri) leiddi Valsmenn upp í úrvalsdeildina. Mynd. / valur.is
Valur komst í kvöld upp í Dominos-deild karla í körfubolta eftir að liðið bar sigur úr býtum, 80-74, gegn Hamar í öðrum leik liðanna í úrslitum umspilsins um laust sæti í efstu deild.

Valur vann því einvígið 2-0 og fara því upp um deild ásamt Haukum sem urðu 1.deildarmeistarar.

Chris Woods var atkvæðamestur í liði Vals í kvöld með 19 stig og 11 fráköst en Oddur Ólafsson gerði 21 stig fyrir Hamar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×