Körfubolti

Pettinella verður í búningi í kvöld

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Valli
Ryan Pettinella verður í leikmannahópi Grindavíkur sem mætir Stjörnunni í öðrum leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik í kvöld.

„Hann er að koma til og verður með," sagði Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Grindavíkur, í samtali við Vísi. Pettinella var slappur fyrir fyrsta leik liðanna í Grindavík á miðvikudag. Hann hitaði upp en í upphitun versnaði líðan hans til muna. Því tók hann ekkert þátt í leiknum.

„Hann er að skríða saman og verður í búningi. Vonandi skilar hann einhverjum mínútum og góðu framlagi," sagði Sverrir Þór. Leikur liðanna í Ásgarði í kvöld hefst klukkan 19.15. Bein útsending verður á Stöð 2 Sport en auk þess verður bein textalýsing frá leiknum hér á Vísi.


Tengdar fréttir

Pabbi er minn helsti aðdáandi

Ryan Pettinella er á sínu þriðja tímabili hjá Grindavík og nýtur þess að spila körfubolta á Íslandi, þó svo að hans bíði frami í viðskiptaheiminum í Bandaríkjunum. Fréttablaðið ræddi við hann um efnaðan föður hans, vítanýtinguna og piparsveinalífið í Grin




Fleiri fréttir

Sjá meira


×