Körfubolti

Guðbjörg var flutt með sjúkrabíl úr Laugardalshöllinni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Guðbjörg Sverrisdóttir, leikmaður Vals, var fyrr í dag flutt á sjúkrahús eftir bikarúrslitaleikinn í körfubolta kvenna en Valur tapaði leiknum 68-60 í Höllinni í dag.

Guðbjörg lág óvíg í töluverðan tíma fyrir aftan varamannabekk Vals og þegar leið á taldi sjúkraþjálfari Vals að hún hefði slitið hásin.

Strax að leik loknum var Guðbjörg flutt úr höllinni í sjúkrabíl. Hún var heldur betur óheppin í leiknum en í fyrri hálfleiknum fór Guðbjörg úr axlalið og var í töluverðan tíma að jafna sig að þeim meiðslum.

Hún var aftur á móti komin aftur í slaginn í þeim síðari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×