Framsóknarflokkurinn með tæp 20 prósent - Björt framtíð skammt á eftir 8. febrúar 2013 16:22
Framsóknarflokkurinn er annað stærsta stjórnmálaafl landsins samkvæmt könnun MMR sem var framkvæmd á tímabilinu 31. janúar til 6. febrúar. Það er nokkuð ljóst að flokkurinn bætir töluvert við sig vegna niðurstöðu í Icesave málinu, en flokkurinn var andvígur samningaleiðinni frá upphafi. Af þeim sem tóku afstöðu sögðu 19,5% að þau myndu kjósa Framsóknarflokkinn ef gengið yrðið til kosninga í dag, borið saman við 14,8% á tímabilinu 15-20 janúar 2013. Björt framtíð hefur svo bætt verulega við sig fylgi á árinu 2013. Af þeim sem tóku afstöðu sögðu 17,8% að þau myndu kjósa Bjarta framtíð nú, borið saman við 11,5 í desember 2012. Fylgi Samfylkingar og Vinstri grænna hefur dregist nokkuð saman á árinu 2013. Af þeim sem tóku afstöðu nú sögust 16,2% kjósa Samfylkinguna nú, borið saman við 17,4% í desember 2012 og 8,6% sögðu að þau myndi kjósa Vinstri græn nú, borið saman við 11,2% í desember 2012. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest fylgi allra flokka en fylgi flokksins hefur þó dregist saman á árinu. Af þeim sem tóku afstöðu sögðu 33% að þau myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn nú borið saman við 37,4% í desember 2012. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 0,9% að þau myndu kjósa dögun ef gengið yrði til kosninga í dag, 1,8% hægri græna, 0,7% Samstöðu og 1,4% sögðu að þau myndu kjósa aðra flokka ef gengið væri til kosninga í dag.Hér má skoða könnunina betur.
Kosningar 2013 Mest lesið Rýming í Neskaupstað og á Seyðisfirði Innlent Tuttugu manns í rútuslysi Innlent „Ég hef enga hugmynd um hvaða maður þetta er“ Innlent Vaktin: Vopnahlé tekur gildi á Gasa Erlent „Gríðarlegt högg“ ef bannið varir til frambúðar Innlent TikTok bann í Bandaríkjunum Erlent Mun færri slasaðir eftir skíðaslysið en talið var í fyrstu Erlent Stofnaði eigin „meme“-rafmynt rétt fyrir embættistöku Erlent Fundu villtan mann í skítaveðri á Fagradalsfjalli Innlent Landið mest allt gult í dag Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkurinn þurfi ferskt upphaf „Gríðarlegt högg“ ef bannið varir til frambúðar Vill að þingið leyfi Hvammsvirkjun með bráðabirgðalögum Vopnahlé og ákvörðun tekin um rýmingu á Austfjörðum Rýming í Neskaupstað og á Seyðisfirði Tuttugu manns í rútuslysi Háskólinn, Hvammsvirkun og Sjálfstæðisflokkurinn á Sprengisandi Landið mest allt gult í dag Fundu villtan mann í skítaveðri á Fagradalsfjalli „Ég hef enga hugmynd um hvaða maður þetta er“ Ný og glæsileg heilsugæslustöð opnuð í Vogum „Algjört þjóðaröryggismál að hafa þetta í lagi“ Vegalokanir líklegar í Öræfasveit á morgun Drepin í árás daginn fyrir vopnahlé Umfangsmikil æfing á rofi á sæstrengjum og kveðjustund í Hafnarfirði Hvalir spókuðu sig í Hafnarfjarðarhöfn Prófessorar íhuga verkfall: „40% akademísks starfsfólks í kulnun eða komin langt á leið“ E. coli fannst í neysluvatni Ærslabelgur og aparóla óskast á Hvolsvöll Grímuklæddi maðurinn kúkaði aftur á bílinn Snarpur skjálfti við Trölladyngju Undirbúa verkföll: „Þetta er ömurleg staða að svona skuli standa“ Sagði nei við sölu Íslandsbanka en treystir ráðherra fullkomlega nú Breytt afstaða til sölu á Íslandsbanka og samgöngutruflanir Veðurviðvaranir og vegalokanir Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að breikka faðminn og vera hlýrri Reyndi að stinga af á bíl og svo á hlaupum Fengu tæpar fimm og sex milljónir króna í tvöföldum launagreiðslum Viðbúin því að fylgjendum fækki í kjölfar TikTok-banns Finnst of langt gengið í glæpavæðingu í umfjöllun um Carbfix Sjá meira