Mig dreymir um að ná afrekum Arnar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. desember 2012 09:00 Anton Sveinn McKee úr Ægi á HM í Tyrklandi. Mynd/AFP „
Það var aukaplús að ná metinu en ég var langmest að pæla í því að bæta minn persónulega árangur," segir Anton Sveinn McKee, skriðsundskappi úr Ægi. Anton Sveinn hafnaði í 25. sæti í skriðsundinu og bætti Íslandsmet Arnar Arnarsonar frá því í Moskvu árið 2002 um tæpa sekúndu. Anton Sveinn kom í mark á tímanum 3:47.83 og bætti sig um fimm sekúndur. Hann segir bætinguna ekki hafa komið sér á óvart. „Allir mínir bestu tímar (innsk: í 25 metra laug) voru frá því á Norðurlandameistaramóti unglinga fyrir ári. Miðað við hvernig ég hef verið að æfa síðan þá vissi ég alveg að þetta gæti gerst." Anton Sveinn keppti í 100 metra bringusundi á miðvikudaginn og bætti tíma sinn í greininni. Hann keppir þó allajafna ekki í greininni. „Það var eiginlega bara upp á skemmtun og til að kynnast lauginni," segir Anton Sveinn sem leggur áherslu á skriðsundið og þá helst lengri vegalengdir. Íslandsmetin í 800 og 1500 metra sundi eru í hans eigu hvort sem er í 25 metra eða 50 metra laug. Rólegur og yfirvegaður fyrir sundin Anton Sveinn segist hafa verið vel stemmdur þegar hann stakk sér til sunds í Tyrklandi í gær. Misjafnt er hvernig íþróttafólk finnur sig á stóra sviðinu en Hafnfirðingurinn virðist njóta sín þar. „Þetta er það sem ég hef verið að undirbúa síðan ég fór á fyrstu Norðurlandamótin fjórtán eða fimmtán ára. Ég hef verið rosalega rólegur og yfirvegaður fyrir sundin. Ég veit hvað ég er kominn til að gera hérna. Ég ætla að bæta mig og ég hef gert það," segir Anton Sveinn. „Á Ólympíuleikunum og öðrum mótum hefur maður lært af reynslunni og veit hvernig maður á að haga sér í sundinu. Ég tek vel eftir því núna að þetta hefur skilað sér." Anton Sveinn keppir í sinni uppáhaldsgrein, 1500 metra skriðsundi, á sunnudaginn. „Það er frí á morgun (í dag) sem er rosalega vel þegið. Markmiðið er að komast eins langt undir fimmtán mínúturnar og hægt er. Ég á metið sjálfur svo ég keppi við sjálfan mig. Það er enginn aukabónus að ná einhverju meti," segir Anton og hlær. Íslandsmet Antons Sveins í greininni er 15:01.35 mínútur.Fjárhagslegan stuðning vantar Anton Sveinn er á lokaári sínu á náttúrufræðibraut í Verzló. Táningurinn æfir tvisvar á dag alla virka daga og segir lítinn tíma fyrir annað en sundið og skólann. Óvíst er hvað tekur við að lokinni útskrift í vor. „Möguleikarnir sem eru í boði hafa hver sína kosti og galla. Ef ég færi út í skóla myndi ég fórna góðum þjálfara sem hugar bara um þig. Hérna heima er fjárhagsstaðan hins vegar ekki sú besta. Maður gæti ekki verið í skóla með sundinu," segir Anton Sveinn sem segir þó efst á óskalistanum að vera heima. „Ég mun gera það ef allt gengur upp. Maður þyrfti að fá einhverja fjárhagslega styrki til þess að fljóta. Aðalástæðan fyrir því að maður gæti farið út er hvernig er haldið utan um þetta hér heima. Við erum með flotta æfingaaðstöðu en það vantar, eins og allir hafa talað um, aðhald hjá ríkinu og meiri stuðning við ÍSÍ. Það er það sem er ekki hvetjandi við að vera heima," segir Anton sem sett hefur stefnuna á Ólympíuleikana árið 2016. Í bili getur hann notið þess að hafa nælt í Íslandsmetið hans Arnar sem er óumdeilt sá Íslendingur sem hefur náð lengst í sundinu. „Afrek hans eru auðvitað eitthvað sem maður vill ná sjálfur. Að verða Evrópumeistari og ná Evrópumeti. Þetta er árangur sem maður lítur upp til og dreymir um að ná einn daginn."
Sund Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Fleiri fréttir Er skrefareglan dauð í NBA? Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Dagskráin: Skiptiborðið, stórleikur í körfunni og Íslendingar í Evrópu Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ „Þetta er bara einn leikur í einu“ Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Fór út í bíl og náði í byssu Messi klæddist Como-treyju Skagamenn á vergangi og af hverju skrifa fótboltamenn ekki á íslensku? Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Sjá meira