Góður möguleiki í báðum leikjum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. ágúst 2012 07:00 Það fer vel á með landsliðsþjálfaranum Lars Lagerbäck og aðstoðarmannum Heimi Hallgrímssyni. Fréttablaðið/Vilhelm
Lars Lagerbäck, þjálfari karlalandsliðs Íslands, tilkynnti í gær 22 manna hóp fyrir landsleikina gegn Noregi og Kýpur í undankeppni heimsmeistaramótsins í Brasilíu 2014. Fyrri leikurinn verður á Laugardalsvelli föstudagskvöldið 7. september og sá síðari ytra gegn Kýpur 11. september. Um fyrstu leiki liðsins í keppninni er að ræða. „Við eigum að minnsta kosti helmingsmöguleika í heimaleiknum gegn Noregi. Við erum byrjaðir að vinna og sjö þúsund manns mættu á leikinn gegn Færeyjum. Ég heyrði hjá leikmönnunum hve ánægðir þeir voru með að spila í þessu andrúmslofti," sagði Lagerbäck á blaðamannafundi í gær en Svíanum líst vel á leikina tvo. „Við eigum góðan möguleika á þremur stigum bæði gegn Noregi og Kýpur. Við þurfum hins vegar að undirbúa okkur afar vel og leika vel. Frammistaðan þarf að vera 100 prósent í báðum leikjum." Íslenska liðið lagði Færeyjar í æfingaleik á Laugardalsvelli á dögunum 2-0 og sýndi Svíinn blaðamönnum myndbrot úr leiknum. Þá benti hann á það sem vel gekk og það sem mætti bæta. Gæði framherjans Kolbeins Sigþórssonar voru öllum ljós og tíðindi af axlarmeiðslum kappans slæmar fréttir fyrir landsliðið. „Væri leikurinn á morgun gæti hann ekki spilað," sagði Lagerbäck sem reiknar með nýjum tíðindum af meiðslum Kolbeins fljótlega. Hann viðurkennir að liðið sé ekki samt án Kolbeins sem hefur skorað átta mörk í ellefu A-landsleikjum. „Tölfræði hans talar sínu máli. Kolbeinn er stórkostlegur markaskorari og frábær leikmaður fyrir liðið. Þetta er sambærilegt og ef Svíar væru án Zlatans. Ef hann er meiddur verða aðrir að fylla í skarðið og við verðum líklega að breyta leikskipulaginu spili hann ekki." Ísland tapaði báðum leikjum sínum gegn Norðmönnum í síðustu undankeppni með minnsta mun. Líkt og svo oft áður spilaði Ísland ágætan leik en uppskeran var engin. Lagerbäck hefur skoðað leikina. „Í leiknum heima tel ég Ísland hafa verið mun betri aðilann svo ef við töpum á þann hátt verð ég mjög vonsvikinn. Liðið hefur spilað vel, miðað við þá leiki sem ég hef séð í síðustu undankeppni, en einstaklingsmistök og slæm nýting á færum orðið liðinu að falli." Eiður Smári utan hópsFátt kom á óvart í leikmannavali Lagerbäcks. Ekkert pláss er þó fyrir markahæsta leikmann landsliðsins frá upphafi, Eið Smára Guðjohnsen. Eiður Smári kom inn á sem varamaður í leiknum gegn Færeyjum en hann er enn án félags. „Þrátt fyrir að hann sé frábær leikmaður og gæti hjálpað okkur hluta úr leiknum tel ég röng skilaboð að velja leikmann sem æfir ekki með liði. Við þurfum leikmenn sem geta spilað 90 mínútur enda veistu aldrei hvað gerist í leikjum," sagði Lagerbäck, sem valdi Grétar Rafn Steinsson sem nýverið samdi við tyrkneska félagið Kayserispor. „Leikform Grétars er spurningarmerki en ég myndi halda að möguleikar hans og Birkis Más um byrjunarliðssæti í stöðu hægri bakvarðar séu jafnmiklir." Birkir og Bjarni bestu kostirnirFáir leikmenn hafa hlotið meiri gagnrýni með íslenska landsliðinu en bakverðirnir Birkir Már Sævarsson og Bjarni Ólafur Eiríksson. Hvort sem gagnrýnin hefur verið réttmæt eða ekki vilja margir meina að landsliðið standi hvað verst að vígi í bakvarðarstöðunum. „Að mínu mati eru Birkir Már og Bjarni Ólafur bestu bakverðirnir sem við eigum," segir Lagerbäck sem telur íslenska liðið ekki sérstaklega veikt í umtöluðum stöðum. „Ég hef séð eldri leiki Bjarna Ólafs með landsliðinu og miðað við leiki hans með okkur tel ég hann vera góðan bakvörð. Hann er stór og sterkur, með góðan vinstri fót og fínan leikskilning. Hann nýtist okkur sóknarlega líka svo ég tel hann ekki eiga gagnrýni skilið," sagði Lagerbäck sem hafði heyrt af gagnrýninni í garð Bjarna Ólafs. „Birkir Már er mjög áhugaverður leikmaður. Hann er líklega fljótasti leikmaðurinn í hópnum og að vera með hraða varnarmenn er mjög mikill styrkleiki. Ég tel þá báða mjög góða leikmenn," sagði Lagerbäck.
Íslenski boltinn Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Körfubolti Skotarnir staðfesta að Víkingur hafi keypt íslensku landsliðskonuna Íslenski boltinn Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Íslenski boltinn Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Fleiri fréttir Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Var strax sannfærð: „Bjóst eiginlega við að þetta myndi vera svona“ Uppgjörið: Fram - Grindavík/Njarðvík 0-3 | Í bikarúrslit í fyrsta sinn Skotarnir staðfesta að Víkingur hafi keypt íslensku landsliðskonuna Fyrsti sigur ÍR-inga síðan á Þjóðhátíðardeginum Æfir íslenskuna daglega í klefanum Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar „Virkilega sáttur við framlag leikmannanna“ „Bárum of mikla virðingu fyrir þeim“ Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum „Búin að slá út ansi öflug lið“ Taugarnar þandar í endurkomusigri Njarðvíkur Tap í fyrsta leik Söru Bjarkar fyrir Hauka síðan 2008 Uppgjörið: Þróttur - ÍBV 1-0 | Þróttarar í bikarúrslit Hetja Þróttar: „Ákvað að hoppa og vona það besta“ Elfar Árni tryggði Völsungum mikilvægan sigur á Mærudögum Afturelding kaupir Kristin Frey frá Val „Nýtt verkefni og nýr leikur“ Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Skoruðu fimm í Breiðholtinu og fóru upp í annað sætið Kaupa Conteh frá Stjörnunni „Ótrúlega spennandi sóknarmaður“ Spilaði á móti Þór um síðustu helgi og var síðan lánaður til Þórs Spilar gegnum meiðsli: „Verður örugglega svolítið vont“ Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Sjá meira