Skoðun

Atvinnuleysi á hraðri niðurleið

Steingrímur J. Sigfússon skrifar
Einhver ánægjulegustu tíðindi síðustu vikna eru nýbirtar tölur um atvinnuleysi. Skráð atvinnuleysi samkvæmt gögnum Vinnumálastofnunar mældist 4,8% í nýliðnum júnímánuði og hefur lækkað hratt undanfarna mánuði. Greinilegt er að aukin umsvif í efnahagslífinu eru að skila fleiri störfum. Stofnunin reiknar með að atvinnuleysi haldist áfram lágt í júlí og spáir 4,5-4,9%. Nú þegar ætla má að slaki niðursveiflunnar hafi að mestu unnist upp mun áframhaldandi efnahagsbati skila sér hraðar í lækkun atvinnuleysis og fjölgun starfa. Vissulega eru þessar atvinnuleysistölur enn of háar en það er þó athyglisvert að skráð atvinnuleysi í síðastliðnum júnímánuði, tveimur og hálfu ári eftir að það náði hæstu hæðum í kjölfar hrunsins, er lægra en í sama mánuði árið 1995.

Tölurnar síðustu tólf mánuði benda til þess að dregið hafi úr árstíðabundnu atvinnuleysi. Athyglisvert er að sjá að ekki var tilkynnt um neinar hópuppsagnir í mars, apríl, maí og júní. Einungis ein hópuppsögn hefur verið tilkynnt á árinu 2012. Í samanburði við flestar aðrar Evrópuþjóðir er atvinnuleysið hér mjög lágt. Efnahagsbatinn nær nú til vel flestra geira atvinnulífsins, þar með vex fjölbreytni þeirra starfa sem bætast við og verði einhver þeirra fjárfestingarverkefna sem eru í undirbúningi að veruleika á næstu misserum mun það enn bæta stöðuna.

Ársfjórðungsleg vinnumarkaðsmæling Hagstofunnar staðfestir einnig batnandi stöðu á vinnumarkaði. Samkvæmt tölum Hagstofunnar fyrir fyrsta fjórðung 2012 fjölgaði starfandi um 1.300 manns og atvinnulausum fækkaði um 1.000 frá sama tíma í fyrra. Ánægjulegt er einnig að sjá að þeim sem hafa verið atvinnulausir í tólf mánuði eða lengur fækkaði um 1.000, úr 2,2% vinnuafls á fyrsta ársfjórðungi 2011 í 1,6% vinnuaflsins á fyrsta ársfjórðungi 2012. Aðferð Hagstofunnar til að mæla stöðuna á vinnumarkaði er ólík mánaðarlegu mælingunum hjá Vinnumálastofnun þar sem Hagstofan byggir á úrtakskönnun úr þjóðskrá. Niðurstöður úr báðum þessum mælingum sýna jákvæða þróun á vinnumarkaði með minnkandi atvinnuleysi.

Atvinnuástand batnar um allt land

Skráð atvinnuleysi var 5,5% á höfuðborgarsvæðinu í júní og minnkaði úr 6,3% í maí. Á landsbyggðinni var atvinnuleysið 3,5% og minnkaði úr 4,5%. Á Suðurnesjum hefur orðið mikil breyting á síðastliðnu ári, þannig mældist atvinnuleysið þar 7,5% í nýliðnum júní samanborið við 10,6% á sama tíma í fyrra. Að sama skapi hefur dregið úr atvinnuleysi bæði á meðal karla og kvenna á landsvísu. Batinn er því ekki stað- eða kynbundinn heldur almennur. Því ber að fagna.




Skoðun

Sjá meira


×