Mál laumufarþega sagt mjög alvarlegt 10. júlí 2012 07:30 Komust inn á flughlað Mennirnir sem hugðust smygla sér með með vél Icelandair til Kaupmannahafnar klifruðu yfir girðingu og komust þannig upp í vélina.fréttablaðið/valli
Isavia mun yfirfara öryggiseftirlit sitt með starfsemi á Keflavíkurflugvelli eftir að tveir menn komust inn á flughlað og upp í vél Icelandair aðfaranótt sunnudags. Í tilkynningu frá Isavia segir að atvikið sé litið mjög alvarlegum augum. Mennirnir tveir, sem eru ungir hælisleitendur og búsettir á gistiheimili í Reykjanesbæ, komust inn á svæðið með því að fara yfir girðingu og komust þaðan inn á flughlað og upp í flugvél Icelandair, sem var á leið til Kaupmannahafnar. Í fyrrnefndri tilkynningu Isavia segir að „ekkert athugavert" hafi komið í ljós við skoðun á verklagi öryggisstarfsmanna Isavia á þeim tíma er atvikið átti sér stað. Mennirnir tveir hafi „greinilega verið vel skipulagðir". „Öryggisdeild Isavia, sem fer með öryggis- og flugverndarmál á Keflavíkurflugvelli, starfar eftir mjög ströngu verklagi sem samþykkt er af Flugmálastjórn Íslands," segir þar. Öryggiskerfið er sagt hafa virkað þar sem að áhöfn Icelandair hafi fylgt verklagsreglum og fundið mennina inni á salerni vélarinnar áður en hún fór í loftið. Forsvarsmenn Icelandair vildu ekki tjá sig um málið þegar Fréttablaðið leitaði viðbragða í gær. Ekki náðist í forstjóra Isavia, en Þórólfur Árnason stjórnarformaður sagði aðspurður um hvort öryggismál Isavia væru í góðum málum að lögregla væri að rannsaka málið. „Við verðum að bíða og heyra hvað lögreglan hefur að segja," sagði Þórólfur. Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar málið. thorgils@frettabladid.is
Fréttir Mest lesið Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Innlent Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Innlent Hættulegt að lána lyf Innlent Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Innlent Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Sjá meira